Eigendur IKEA fá hálfan milljarð í arðgreiðslu

Fram kemur í ársreikningi að stjórn leggi til að hluthöfum …
Fram kemur í ársreikningi að stjórn leggi til að hluthöfum verði greiddar 500 milljónir króna í arð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagnaður Miklatorgs hf., sem á og rekur IKEA-verslunina á Íslandi, nam 982,5 milljónum króna á síðasta rekstrarári, sem miðast við september til ágúst ár hvert. Hagnaður félagsins rekstrarárið á undan var 758,9 milljónir króna og jókst hann því um tæplega 224 milljónir á milli ára.

Sölutekjur félagsins námu 10,3 milljörðum króna og jukust um tæplega 1,4 milljarða milli rekstrarára. Rekstrargjöldin jukust á sama tíma um liðlega milljarð króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, var 1,3 milljarðar króna og jókst um 322 milljónir króna á milli ára.

Eignir félagsins námu 2,2 milljörðum króna í lok rekstrarársins og var eigið fé 535 milljónir króna.

Fram kemur í ársreikningi að stjórn leggi til að hluthöfum verði greiddar 500 milljónir króna í arð. Í stjórninni sitja eigendur félagsins, bræðurnir Jón og Sigurður Gísli Pálmasynir, auk Sigfúsar B. Ingimundarsonar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK