Samruni Haga og Olís heimilaður

Samkeppniseftirlitið heimilaði kaup Haga á Olíuverzlun Íslands og fasteignafélaginu DGV …
Samkeppniseftirlitið heimilaði kaup Haga á Olíuverzlun Íslands og fasteignafélaginu DGV hf. á grundvelli sáttar við Haga þann 11. september 2018. Samruninn var háður ítarlegum skilyrðum. mbl.is/Eggert

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaupendur að framboðnum eignum Haga hf. og Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís) vegna samruna félaganna.

Samkeppniseftirlitið heimilaði kaup Haga á Olís og fasteignafélaginu DGV hf. á grundvelli sáttar við Haga þann 11. september 2018. Samruninn var háður ítarlegum skilyrðum, sem ætlað var að ryðja úr vegi samkeppnishindrunum sem af honum leiddu.

Þar á meðal skuldbundu Hagar sig til að selja þrjár dagvöruverslanir Haga, dagvöruhluta verslunar Olís í Stykkishólmi og fimm eldsneytisstöðvar Olís, að því er segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. 

Þá segir, að framkvæmd samruna Haga og Olís hafi verið háð því skilyrði að hæfur kaupandi fyndist að öllum framboðnum eignum. Er í sáttinni kveðið á um að kaupendur uppfylli tiltekin skilyrði sem fela m.a. í sér að þeir séu til þess fallnir og líklegir til að veita Högum og öðrum keppinautum umtalsvert samkeppnislegt aðhald.

Báðir kaupendur metnir hæfir

Í tengslum við sáttina gerðu Hagar annars vegar samning við Atlantsolíu um kaup á umræddum eldsneytisstöðvum og hins vegar samning við Ísborg ehf. um kaup á dagvöruverslununum þremur, auk dagvörusölu Olís í Stykkishólmi.

Á grundvelli fyrrgreindrar sáttar var óháðum kunnáttumanni falið að meta þá kaupendur eignanna sem Hagar hafa samið við. Mat kunnáttumaðurinn báða fyrrgreinda kaupendur hæfa, að því er eftirlitið greinir frá. 

„Að undangenginni frekari athugun féllst Samkeppniseftirlitið á að Atlantsolía uppfyllti skilyrði sáttarinnar. Í ljósi álits kunnáttumanns og ákveðinna annarra atriða sem vörðuðu hæfi Ísborgar sem mögulegs kaupanda óskaði Samkeppniseftirlitið ítarlegra gagna frá fyrirtækinu um ýmis atriði sem tengjast hæfismatinu. Í kjölfar þeirrar athugunar komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Ísborg uppfyllti ekki kröfur um hæfi kaupanda eignanna, a.m.k. að svo stöddu.

Í kjölfarið var óskað á ný eftir mati Samkeppniseftirlitsins á hæfi Ísborgar. Réðust aðilar í tilteknar endurbætur á grundvelli þeirra athugasemda sem fram komu í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Í ljósi þeirra lagfæringa sem gerðar hafa verið af hálfu samningsaðila, sem og viðbótarskuldbindinga þeirra, hefur Samkeppniseftirlitið nú metið Ísborg hæfan kaupanda í skilningi sáttarinnar,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.

Þá segir, að eitt þeirra atriða sem Samkeppniseftirlitið og óháður kunnáttumaður hafi tekið til skoðunar hafi verið óhæði Ísborgar gagnvart Högum, einkum vegna tengsla fyrirsvarsmanns Ísborgar við óbeinan hluthafa í Högum. Að mati Samkeppniseftirlitsins girða umrædd tengsl ekki fyrir viðskiptin, m.t.t. til þeirra forsendna sem þau eru reist á.

„Í ljósi framangreinds er samrunaaðilum nú heimilt að framkvæma fyrrgreindan samruna Haga og Olís.

Samkeppniseftirlitið mun birta ákvörðun vegna málsins, þar sem gerð verður nánari grein fyrir forsendum málsins, þar á meðal fyrrgreindu mati á hæfi kaupenda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK