Ásmundur ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfesta

Ásmundur Tryggvason.
Ásmundur Tryggvason. Ljósmynd/Aðsend

Ásmundur Tryggvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka en hann tekur við keflinu af Vilhelm Má Þorsteinssyni sem er nýr forstjóri Eimskips.

Ásmundur hefur stýrt Fyrirtækjaráðgjöf bankans frá 2012 en hann hefur viðamikla reynslu af fjármálamörkuðum, að því er Íslandsbanki segir í tilkynningu.

Ásmundur hefur meðal annars starfað hjá greiningu bankans, við skuldabréfaútgáfu og fyrirtækjaþjónustu. Hann hefur jafnframt setið í stjórnum fjármála-, tækni-, iðn-, síma- og útgáfufyrirtækja. Ásmundur er lögfræðingur að mennt.

Atli Rafn Björnsson mun taka við starfi Ásmundar og hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka, að því er fram kemur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK