1,4% atvinnuleysi í desember

Atvinnuþátttaka í desember 2018 var 79,6% en at­vinnu­leysi 1,4%, sam­kvæmt …
Atvinnuþátttaka í desember 2018 var 79,6% en at­vinnu­leysi 1,4%, sam­kvæmt vinnu­markaðsrann­sókn Hag­stofu Íslands. mbl.is/Eggert

Áætlað er að 201.600 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í desember 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 79,6% atvinnuþátttöku.

Af þeim voru 198.800 starfandi og 2.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,4%, að því er fram kemur í fréttatilkynningu á vef Hagstofunnar.

Samanburður mælinga fyrir desember 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið minnkaði örlítið, eða um 100 manns og hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 2,2 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 3.200 manns, en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 0,8 prósentustig.

Atvinnulausir í desember 2018 mældust 3.300 færri en í sama mánuði árið 2017 þegar þeir voru 6.100 eða 3,0% af vinnuaflinu. Í frétt Hagstofunnar segir að mikilvægt sé að hafa í huga að þrátt fyrir að mæling atvinnuleysis í desember 2018 sé óvenjulág er munurinn á atvinnuleysi milli nóvember og desember ekki tölfræðilega marktækur né heldur munurinn á mælingum atvinnuleysis í desember 2017 og desember 2018.

Alls voru 51.700 utan vinnumarkaðar í desember 2018 sem er fjölgun frá því í desember 2017 þegar þeir voru 44.900.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK