Hagnaður Advania 557 milljónir

Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.
Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Hagnaðurinn Advania á Íslandi nam 557 milljónum króna í fyrra samanborið við 420 milljónir króna árið 2017. Hagnaður fyrir skatta var 713,2 milljónir og jókst um 31,3% frá fyrra ári.

Árið 2018 var mjög gott rekstrarár hjá Advania á Íslandi. Tekjur, EBITDA og rekstrarhagnaður jukust á milli ára. Óvissuástand í efnahagslífinu hafði þó áhrif á reksturinn á síðustu mánuðum ársins, segir í tilkynningu.

Tekjur Advania á Íslandi á árinu 2018 voru 15,1 milljarður króna og jukust um tæp 20% milli ára.  Rekstrarhagnaður (þ.e. hagnaður fyr­ir af­skrift­ir, fjár­magns­kostnað og skatta - EBITDA) jókst á sama tíma um tæp 11% og nam 1,3 milljarði og hagnaður fyrir fjár­magns­kostnað og skatta  (EBIT) jókst um ríflega 24%, fór úr 633 milljónum króna árið 2017 í 787 milljónir krónur árið 2018.

„Á heildina litið er ég mjög sáttur við rekstrarniðurstöðu ársins, sérstaklega ef tekið er tillit til þess að síðustu mánuðir ársins lituðust af óvissu í efnahagslífinu og kostnaðarhækkunum. Árangurinn skýrist fyrst og fremst af aukinni eftirspurn eftir þjónustu Advania. Sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir sjá tækifærin í að fela okkur heildarumsjón með rekstri sinna upplýsingakerfa. Eins var nýjum þjónustulausnum, svo sem frá Outsystems og Salesforce, mjög vel tekið á markaðnum. Til marks um gott gengi okkar valdi Microsoft Advania samstarfsaðila ársins annað árið í röð,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi, í fréttatilkynningu.

Hann segir í fréttatilkynningu að hægagangur í viðskiptalífinu á síðustu mánuðum ársins hafi haft áhrif á rekstur fyrirtækisins. „Þau neikvæðu áhrif héldu áframfyrstu mánuði þessa árs. Ekki er útséð með hvaða áhrif nýir kjarasamningar munu hafa en óvissan í efnahagslífinu hefur minnkað. Við merkjum jákvæðari tón í samtölum við okkar viðskiptavini. Þannig finnum við fyrir stóraukinni eftirspurn eftir ráðgjöf um stafræna stefnumótun, enda öllum orðið ljóst að snjöll notkun á upplýsingatækni er forsenda árangurs í rekstri. Við horfum því mjög björtum augum á komandi mánuði og árið í heild,“ segir Ægir Már.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK