Opna veitingastað við Arnarnesvog fyrir næstu jól

Orri Árnason hjá Zeppelin arkitektum teiknaði húsið sem verður klætt …
Orri Árnason hjá Zeppelin arkitektum teiknaði húsið sem verður klætt að utan með lerki. Á þaki er torfklæðning. Arnþór Birkisson

Óðum styttist nú í að Garðbæingar eignist sinn fjórða veitingastað, en ekki eru mörg ár síðan eini matsölustaðurinn sem íbúar í bænum gátu sótt var veitingastaður IKEA við Kauptún. Nýjasta viðbótin í veitingahúsaflóru bæjarins er staður sem er að rísa við Arnarnesvog, nánar tiltekið við Ránargötu 4, skammt frá Sjálandsskóla. Stendur veitingastaðurinn á 4.000 fermetra sjávarlóð.

Rekstraraðili nýja veitingastaðarins, Stefán Magnússon, sem rekur Mathús Garðabæjar og opnaði nýlega steikhúsið Reykjavík MEAT, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að stefnt sé að því að opna staðinn fyrir næstu jól.

„Þetta er mestmegnis veislusalur sem getur tekið á móti 3-400 manns í árshátíðir t.d., en einnig er þarna einkafundaherbergi fyrir minni hópa. Svo verður veitingahús sem tekur um 100 manns í sæti. Við munum einnig starfrækja hágæða kaffihús yfir daginn og bjóða upp á mat í hádeginu og á kvöldin,“ segir Stefán.

Sjá má fréttina í heild sinni í ViðskiptaMogganum. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK