Svavar til Origo

Svavar H. Viðarsson hefur verið ráðinn deildarstjóri hjá Origo.
Svavar H. Viðarsson hefur verið ráðinn deildarstjóri hjá Origo. Ljósmynd/Aðsend

Svavar H. Viðarsson hefur verið ráðinn deildarstjóri hjá Origo. Hann mun leiða teymi sem mun sinna verkefnum á borð við sjálfvirknivæðingu, gervigreind og bestun ferla, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þar segir að Svavar hafi undanfarið ár starfað sem framkvæmdastjóri stafrænna viðskipta hjá Cohn & Wolfe á Íslandi en var þar áður yfir stjórnendaráðgjöf Advania. Jafnframt hefur hann starfað við verkefnastjórn og stjórnendaráðgjöf í stafrænni umbreytingu í Skandinavíu fyrir stofnanir og fyrirtæki eins og LEGO, JYSK, Coca-Cola, Santander Bank, Eika Forsikring, norska herinn og norska heilbrigðisráðuneytið.

Svavar er með BSc í verkferlahagfræði og virðiskeðjustjórnun, MSc í verkefnastjórnun og MBA-gráðu. Þá hefur hann einnig lokið Dimploma í Digital Transformation frá Boston University og Diploma í Innovation Management frá MIT.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK