Coripharma semur við STADA

Að störfum við pökkun.
Að störfum við pökkun. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma hefur samið við þýska lyfjafyrirtækið STADA um að pakka um 700 milljónum taflna af lyfjum árlega.

Samningurinn er til þriggja ára og er heildarverðmæti hans um 12 milljónir evra, eða um 1,6 milljarðar íslenskra króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Lyfin tvö sem um ræðir, atorvastatin og enalapril, eru framleidd í verksmiðju þýska fyrirtækisins en þeim verður pakkað í lyfjaverksmiðju Coripharma í Hafnarfirði. Þaðan fara þau á markað í fjölmörgum Evrópulöndum undir merkjum STADA, meðal annars á Íslandi og Norðurlöndunum og á stærstu markaði Evrópu.

Coripharma sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og pökkun samheitalyfja, sem það selur til annarra lyfjafyrirtækja um allan heim.

STADA er eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims. Félagið selur lyf í um 120 löndum. Salan nam yfir 2 milljörðum evra á árinu 2018. Þar starfa um 10.400 manns.

 „Pökkunin fer af stað núna í desember. Þetta stóra verkefni gerir okkur kleift að fjölga starfsfólki fyrr en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir, bæði á framleiðslusviði og í gæðaeftirliti,“ segir Bjarni K. Þorvarðarson, forstjóri Coripharma, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK