Stækka verksmiðju og skapa rúmlega 100 störf

Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.
Orri Björnsson, forstjóri Algalífs. Ljósmynd/Aðsend

Ákveðið hefur verið að rúmlega þrefalda framleiðslu á astaxanthíni hjá líftæknifyrirtækinu Algalíf í Reykjanesbæ með því að stækka verksmiðju fyrirtækisins um rúmlega helming. Hafist verður handa strax í upphafi næsta árs og rúmlega 100 störf munu skapast á framkvæmdatímanum fram til 2022.

Erlend fjárfesting vegna verkefnisins nemur um fjórum milljörðum króna. „Ársveltan mun nærri fjórfaldast eftir stækkun og fara úr einum og hálfum milljarði króna í um fimm og hálfan milljarð“ er haft eftir Orra Björnssyni, forstjóra Algalífs, í tilkynningu.

Al­ga­líf Ice­land ehf. var stofnað í ág­úst 2012 og er í eigu norska fé­lags­ins NutraQ A/​S. Fram­kvæmda­stjóri fy­ritæk­is­ins er Orri Björns­son sem hef­ur um ára­bil starfað í lyfja­geir­an­um, meðal ann­ars hjá Acta­vis og einnig sem sér­fræðing­ur og fram­kvæmda­stjóri hjá Sam­einuðu þjóðunum vegna upp­bygg­ing­ar á nú­tíma lyfja­verk­smiðjum í Afr­íku.

„Öll framleiðsla þessa árs er löngu seld og bróðurpartur framleiðslu næsta árs líka. Markaðshorfur eru mjög góðar og fjögurra milljarða erlend fjárfesting sýnir trú á því sem við erum að gera“ segir Orri.

Öll framleiðsla Algalífs á örþörungum fer fram í stýrðu umhverfi innanhúss með umhverfisvænum orkugjöfum, eru bæði magn og gæði stöðug. Úr þörungunum er unnið fæðubótaefnið astaxantín. Algalíf hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi.

Framleiðsla Algalífs á astaxanthíni úr örþörungum er umhverfisvæn og ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í ferlinu. Notast er við sérstök LED ljós og tölvustýrð ljósa- og hitakerfi við ræktun örþörunganna í lokuðum rörakerfum sem þýðir að vatns-, raforku- og landnotkun er í lágmarki.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK