Margrét tekur við af Grétu Maríu

Margrét Hólm Valsdóttir.
Margrét Hólm Valsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur nýjan formann Matvælasjóðs.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Margrét er útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík, hún er viðskipta- og iðnrekstrarfræðingur og er með diplómu í ferðamálafræði. Margrét hefur auk þess starfað sem fjármálastjóri, hótelstjóri og skrifstofustjóri og kom að rekstri búsins að Gautlöndum í Mývatnssveit um árabil.

Margrét tekur við formennsku af Grétu Maríu Grétarsdóttur að því er segir á vef ráðuneytisins.

Stjórn Matvælasjóðs er þannig skipuð: Margrét Hólm Valsdóttir, án tilnefningar, formaður. Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, og Karl Frímannsson, án tilnefningar.

Sjóðurinn hefur ríflega 600 milljónir til úthlutunar árið 2021 og í desember hlutu 62 verkefni styrk úr sjóðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK