Elísabet Ýr nýr fjármálastjóri Orkusölunnar

Elísabet Ýr nýr fjármálastjóri Orkusölunnar.
Elísabet Ýr nýr fjármálastjóri Orkusölunnar. Ljósmynd/Aðsend

Elísabet Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Orkusölunnar. 

Elísabet er viðskiptafræðingur frá Bifröst og hefur lokið meistaragráðu í stjórnunarreikningsskilum og viðskiptagreind árið 2014 frá Háskólanum í Reykjavík.

Elísabet starfaði áður sem sérfræðingur á fjármálasviði Samherja og fyrir það sinnti hún mismunandi sérfræðistörfum fyrir Samherja í Evrópu, meðal annars á sviði greininga og viðskiptagreindar.

Elísabet gegndi um tíma stöðu fjármálastjóra félaga Jarðborana í Asíu sem voru staðsett á Filippseyjum, í Malasíu og Indónesíu.

Elísabet kemur til með að byggja upp og leiða fjármálasvið Orkusölunnar en fyrirtækið hefur stækkað hratt á seinustu árum er kemur fram í tilkynningu.  

Haft er eftir Elísabetu í tilkynningu að áhugi hennar á grænni orku hafi kviknað við störf hjá Jarðborunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK