Allar vörur Juul bannaðar

Vörur frá Juul í verslun í Kaliforníu í gær.
Vörur frá Juul í verslun í Kaliforníu í gær. AFP

Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið fyrirskipaði í gær að allar vörur rafrettufyrirtækisins Juul skyldu teknar úr sölu í landinu, þar sem fyrirtækið þykir ekki hafa gegnt vissum öryggiskröfum eftirlitsins.

Ákvörðunin, sem Juul hefur sagst munu áfrýja, ryður brautina fyrir samkeppnisaðila til að auka hlutdeild sína á markaðinum sem Juul gnæfði áður yfir.

Fyrirtækið hefur haft um 36% hlutdeild í bandaríska rafrettumarkaðinum að undanförnu, en naut 70% hlutdeildar áður en eftirlitsstofnunin beitti sér gegn bragðtegundum í rafrettum.

Sektargreiðslur

Juul samþykkti í apríl að greiða 22,5 millj­ónir dala, eða um þrjá millj­arða ís­lenskra króna, í skaðabæt­ur fyr­ir að markaðssetja vör­ur sér­stak­lega fyr­ir ung­linga og logið til um hversu ávana­bind­andi þær eru.

Á síðasta ári borgaði fyr­ir­tækið 14,5 milljóna dala sekt í Arizona-ríki og lofaði í kjöl­farið að hætta að markaðssetja fyr­ir ung­menni. Nokkr­um mánuðum síðar greiddi Juul 40 millj­óna dala sekt í Norður-Karólínu. Fyr­ir­tækið hef­ur átt í svipuðum dóms­mál­um í Kali­forn­íu og New York.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK