Hjörtur gengur til liðs við Lucinity

Hjörtur Líndal Stefánsson hefur verið ráðinn sem CTO hjá Lucinity.
Hjörtur Líndal Stefánsson hefur verið ráðinn sem CTO hjá Lucinity. Ljósmynd/Aðsend

Hjörtur Líndal Stefánsson hefur verið ráðinn sem CTO hjá Lucinity, íslensku sprotafyrirtæki sem smíðar hugbúnað til varnar peningaþvætti. Hjörtur mun hafa yfirumsjón með allri tækni og hugbúnaðarþróun Lucinity og styðja við frekari vöxt þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lucinity um ráðningu Hjartar.

Í tilkynningunni segir að Hjörtur snúi nú aftur til Íslands eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum hjá tæknirisanum Amazon síðustu átta ár. Hjá Amazon bar hann ábyrgð á myndbandsauglýsingakerfi allra miðla í eigu fyrirtækisins en þar heyra undir þekkt vörumerki á borð við Prime Video, Twitch og IMDB. Síðastliðin 17 ár hefur Hjörtur sankað að sér reynslu við leiðtogastörf í hönnun og innleiðingu dreifstýrðra hugbúnaðarkerfa sem þjóna milljónum viðskiptavina. Fyrir tíma sinn hjá Amazon sinnti Hjörtur fjölbreyttum hlutverkum í hugbúnaðarþróun hjá fyrirtækjunum Ubisoft og CCP.

Hjörtur tekur sæti í framkvæmdastjórn Lucinity og ber ábyrgð á tæknistefnu og hugbúnaðarteymum fyrirtækisins. Teymi undir hans stjórn halda áfram að leggja ofuráherslu á uppbyggingu leiðandi kerfis í vörnum gegn peningaþvætti sem eykur skilvirkni og skalanleika fjármálastofnana um allan heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK