Breyta lögum og stofna dótturfélag um Carbfix

Carbfix starfsemi Orkuveitunnar hefur vakið mikla athygli.
Carbfix starfsemi Orkuveitunnar hefur vakið mikla athygli. Ljósmynd/mbl.is

Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett  drög að frumvarpi til breytinga á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur í samráðsgátt stjórnvalda til kynningar. 

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að markmið með frumvarpsdrögunum er að tryggja skýra lagaheimild Orkuveitu Reykjavíkur til að eiga hlut í félögum sem tengjast Carbfix- aðferðinni.

„Carbfix aðferðin felst í að leysa koldíoxíð í vatni og dæla því niður í basaltsberggrunn þar sem náttúrulegt ferli er notað til að steinrenna því til frambúðar. Við þróun tækninnar var stuðst við rannsóknir, búnað, aðstöðu og þekkingu Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga.

Sveitarfélögin sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur, stjórn fyrirtækisins og stjórn Carbfix telja æskilegt að stofna hefðbundið hlutafélag, Carbfix hf., um rekstur tækninnar, eigi hugmyndir félagsins um framtíðarnýtingu Carbfix aðferðarinnar fram að ganga,“ segir í tilkynningu

Einnig kemur fram að verkefni Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga séu tilgreind í lögum um Orkuveitu Reykjavíkur sem skilgreinir kjarnastarfsemi þeirra.

„Þar er einnig áskilið að önnur verkefni séu heimil, svo fremi sem í þeim sé nýtt þekking og rannsóknir félaga innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur enda tengist þau kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Með frumvarpi þessu eru tekin af öll tvímæli um að Carbfix aðferðin teljist til slíkra verkefna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK