66°Norður loka verslun sinni á Strikinu

Starfsemi 66°Norður í Danmörku hefur tekið breytingum til að mæta …
Starfsemi 66°Norður í Danmörku hefur tekið breytingum til að mæta aukinni eftirspurn á markaði. Þetta segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið 66°Norður hefur ákveðið lokað verslun sinni á Strikinu í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að starfsemi 66°Norður í Danmörku hafi tekið breytingum til að mæta aukinni eftirspurn á markaði.

Verslunin á Strikinu var opnuð árið 2015.

„Við ákváðum að endurnýja ekki leigusamninginn á Strikinu sem lýkur nú um mánaðamótin en húsnæðið var orðið of lítið og óhagkvæmt fyrir reksturinn í núverandi mynd. Við val á verslun þá skiptir höfuðmáli að sýna vörumerkið í réttu ljósi og bjóða upp á heildstætt vöruúrval. Við höfðum þennan lærdóm í huga við val á verslunarhúsnæði í London, þar bjóðum við upp á breiðari vörulínu ásamt því að gefa vörumerkinu vægi ásamt 100 ára íslenskri arfleifð,“ er haft eftir Aldísi Arnardóttur, yfirmanni verslunarsviðs 66°Norður, í tilkynningunni.

„Vöxtur okkar í Danmörku hefur verið heilbrigður og góður,” er …
„Vöxtur okkar í Danmörku hefur verið heilbrigður og góður,” er haft eftir Aldís. Ljósmynd/Aðsend

Salan jókst um 58%

Í tilkynningunni kemur fram að nýverið hafi 66°Norður opnað verslun, eða svo­kallaða „shop-in-shop“, í dönsku versluninni Illum. Aðalverslun 66°Norður er þó enn á Sværtegade í Kaupmannahöfn.

„Aðalverslun okkar á Sværtegade gengur mjög vel og jókst salan þar um 58% á milli ára. Enn fremur gengur salan í Illum mjög vel og við teljum að með þessum tveimur verslunum í Kaupmannahöfn séum við að ná vel til danskra viðskiptavina og einnig til ferðamanna sem versla mikið í Illum,“ er haft eftir Aldísi

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK