Kaupa ekki hlut í Heimstaden

Heimstaden hóf starfsemi á Íslandi árið 2020 þegar það yfirtók …
Heimstaden hóf starfsemi á Íslandi árið 2020 þegar það yfirtók rekstur Heimavalla og afskráði félagið í kjölfarið úr Kauphöllinni. Félagið á um 1.700 íbúðir hér á landi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekkert verður úr kaupum íslenskra lífeyrissjóða á hlut í leigufélaginu Heimstaden. Morgunblaðið greindi frá því í nóvember sl. að Heimstaden ætti í viðræðum við lífeyrissjóðina um möguleg kaup á félaginu. Miðað við eignasafn félagsins má ætla að fjárfesting sjóðanna hefði þá verið um 30 milljarðar króna.

Viðræðum Heimstaden við lífeyrissjóðina lauk þó án niðurstöðu. Heimstaden hefur í kjölfarið tekið ákvörðun um að minnka eignasafn sitt hér á landi. Félagið á um 1.700 íbúðir á Íslandi, en tæplega helmingur þeirra er á höfuðborgarsvæðinu.

„Viðskiptamódel okkar krefst stærðarhagkvæmni og stefna Heimstaden á öllum mörkuðum er að vinna með öflugum stofnanafjárfestum til langs tíma,“ segir Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi, í samtali við ViðskiptaMoggann í dag.

Hægt er að lesa nánari umfjöllun þar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK