Sveinbjörn ráðinn forstöðumaður innan Landsvirkjunar

Sveinbjörn Finnsson.
Sveinbjörn Finnsson. Ljósmynd/Aðsend

Sveinbjörn Finnsson hefur verið ráðinn forstöðumaður nýrrar deildar Verkefnaþróunar hjá Landsvirkjun á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar. Sveinbjörn hóf störf hjá Landsvirkjun árið 2015 og hefur síðustu tvö ár starfað sem viðskiptaþróunarstjóri.

Í tilkynningu Landsvirkjunar segir að verkefni deildarinnar sem Sveinbjörn muni leiða séu í tengslum við endurnýjanlega raforkuvinnslu erlendis og rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi. 

Tilkynningin í heild sinni:

Sveinbjörn Finnsson hefur verið ráðinn forstöðumaður nýrrar deildar Verkefnaþróunar hjá Landsvirkjun á sviði Viðskiptaþróunar og nýsköpunar.

Deildin leiðir þróun verkefna í tengslum við endurnýjanlega raforkuvinnslu erlendis og rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi. Í starfsemi deildarinnar felast tækifæri fyrir Landsvirkjun til að vaxa á nýjum sviðum og taka virkan þátt í orkuskiptum á Íslandi og erlendis.

Sveinbjörn hóf störf hjá Landsvirkjun árið 2015 sem sérfræðingur í viðskiptagreiningu og hefur síðustu tvö ár starfað sem viðskiptaþróunarstjóri. Hann hefur unnið að þróun viðskiptatækifæra, leitt samningaviðræður við nýja viðskiptavini og stýrt verkefnaþróun. Sveinbjörn er með M.Sc. gráðu í orkuverkfræði frá ETH í Zürich og alþjóðlega IPMA vottun í verkefnastjórnun.

Vegna loftslagsbreytinga leitar heimurinn allra leiða til að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir endurnýjanlega orku og það kallar á verkefni á borð við þau sem Sveinbjörn og hans fólk mun leiða. Á Íslandi er Landsvirkjun ásamt samstarfsaðilum þegar að þróa verkefni sem snúa að framleiðslu vetnis og metanóls fyrir orkuskiptin. Erlendis tekur fyrirtækið sömuleiðis virkan þátt, þróar og fjárfestir í uppbyggingu endurnýjanlegrar raforkuvinnslu með samstarfsaðilum og er þar sérstök áhersla lögð á sjálfbæra framþróun norðurslóða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK