220 milljónir í húsbúnað Skattsins

Hús íslenskra ríkisfjármála er í Katrínartúni 6 við Höfðatorg. Þar …
Hús íslenskra ríkisfjármála er í Katrínartúni 6 við Höfðatorg. Þar verða Skatturinn og Fjársýsla ríkisins til húsa en ríkið leigir húsnæðið til næstu 30 ára með möguleika á framlengingu. Sigtryggur Sigtryggsson

Skatturinn keypti nýjan húsbúnað fyrir rúmlega 220 milljónir króna í nýjar höfuðstöðvar stofnunarinnar sem staðsettar verða í Húsi íslenskra ríkisfjármála í Katrínartúni 6. Sex útboð fóru fram um kaup á innanstokksmunum en gengið var til samninga við Á. Guðmundsson, Hirzluna, Pennann og Sýrusson, að því er fram kemur í skriflegu svari Skattsins við fyrirspurn ViðskiptaMoggans.

Í svari Skattsins er bent á að flutningarnir hafi verið fyrirhugaðir um nokkurt skeið og að vegna þess hafi viðhald og kaup á innan­stokksmunum setið á hakanum. Gert sé ráð fyrir að stofnunin verði til húsa í Húsi íslenskra ríkisfjármála næstu 30 árin, hið minnsta, og því þyki mikilvægt að hafa það í huga við kaup á húsbúnaði á þessum tímapunkti.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK