Þurfa að óska eftir framlengingu á séreignarsparnaðarleið

Aðalstöðvar skattsins, við Laugaveg.
Aðalstöðvar skattsins, við Laugaveg. mbl.is/sisi

Almenn heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota, eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna, hefur verið framlengd til og með 31. desember 2024.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Skattsins sem birt var í gær. Lokadagur til að óska eftir framlengingu er í dag, en umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán þurfa að óska eftir því að ráðstöfunin haldi áfram.

Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá og með morgundeginum og engar frekari greiðslur berast inn á lán.

Frestur til að samþykkja áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með 30. september 2023. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði þegar þær berast, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Framlengingin byggir á lögum nr. 51/2023, sem samþykkt voru á Alþingi 9. júní.

Uppfært: Upphafleg fyrirsögn gaf til kynna að ekki væri hægt að sækja um framlengingu leiðarinnar eftir daginn í dag. Hið rétta er að hægt verður að sækja um framlengingu úrræðisins til loka september. Fyrirsögnin hefur verið uppfærð samkvæmt því.

Lokadagur til að óska eftir framlengingu er í dag.
Lokadagur til að óska eftir framlengingu er í dag. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK