Valdís ráðin mannauðsstjóri Sýnar

Valdís Arnórsdóttir.
Valdís Arnórsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Valdís Arnórsdóttir hefur verið ráðin mannauðstjóri Sýnar. Hún mun leiða áfram teymi mannauðsmála og eignaumsýslu hjá fyrirtækinu.

Valdís kemur til Sýnar frá Marel þar sem að hún hefur starfað í 11 ár, lengst af sem stjórnandi í alþjóðlegu mannauðsteymi auk þess að leiða alþjóðlegt krísuteymi fyrirtækisins. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá Heklu.

 „Við erum mjög ánægð að fá Valdísi til þess að leiða mannauðsmál Sýnar. Fyrirtækið er á breytingarvegferð með upplifun viðskiptavina að leiðarljósi og spilar menning fyrirtækisins og mannauður lykilhlutverk í þeirri vegferð. Valdís er með víðtæka innlenda og alþjóðlega reynslu í mannauðsmálum, rekstri, stefnumótun og breytingastjórnun sem ég er sannfærð um að muni nýtast mjög vel í næstu skrefum félagsins,“ segir Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdarstjóri Nýsköpunar og rekstrar hjá Sýn, í tilkynningu.  

„Ég tel að víðtæk reynsla mín og ástríða fyrir margbreytilegri flóru mannauðsmála komi til með að nýtast vel á þeirri vaxtarvegferð sem Sýn er á og er full tilhlökkunar að takast á við verkefnið með því öfluga fólki sem hjá fyrirtækinu starfar,“ segir Valdís Arnórsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK