Sigríður Hrefna ráðin forstjóri Nóa Síríusar

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríusar.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríusar.

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri Nóa Síríusar. Þóra Gréta Þórisdóttir sem verið hefur tímabundið starfandi forstjóri mun á sama tíma hverfa aftur til fyrri starfa sem fjármálastjóri Nóa Síríusar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sigríður Hrefna er með embættispróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og með MBA-gráðu frá Copenhagen Business School. Sigríður hefur víðtæka leiðtogareynslu í ýmsum atvinnugreinum bæði hérlendis og erlendis.

Hún kemur frá Íslandsbanka þar sem hún var framkvæmdastjóri einstaklingssviðs frá árinu 2017 og var þar m.a. lykilmaður í að byggja upp stafræna vegferð bankans. Áður var hún framkvæmdastjóri smásölusviðs Olís þar sem hún leiddi mikla umbreytingarvinnu fyrirtækisins á smásölumarkaði.

Áður starfaði hún meðal annars sem forstöðumaður fjárfestingabankasviðs hjá Arion banka, sem framkvæmdastjóri skilanefndar Sparisjóðsbanka Íslands, sem framkvæmdastjóri hjá Atlas Ejendomme A/S og sem lögmaður hjá Lex lögmannsstofu. Hún hefur jafnfram setið í stjórnum ýmissa félaga.

„Ég er mjög ánægður með að hafa fengið Sigríði Hrefnu sem forstjóra í okkar öfluga stjórnendateymi, til að leiða áframhaldandi vöxt Nóa Síríusar. Starfsreynsla hennar og persónulegir eiginleikar falla einstaklega vel að þeirri spennandi vegferð sem fram undan er hjá félaginu. Við hlökkum til að vinna með henni ásamt framúrskarandi starfsfólki félagsins í að móta saman framtíð Nóa Síríusar.

Á sama tíma vil ég nota tækifærið til að koma á framfæri innilegu þakklæti til Þóru Grétu Þórisdóttur fyrir frábæra forystu í starfi hennar sem starfandi forstjóri síðastliðið hálft ár. Framlag hennar hefur verið mjög mikilvægur þáttur í að viðhalda velgengni fyrirtækisins,“ er haft eftir Rolf Arnljot Strøm, stjórnarformanni Nóa Síríusar.

„Nói Siríus er öflugt og rótgróið félag sem hefur þróast með þjóðinni frá því snemma á síðustu öld. Stefna fyrirtækisins er metnaðarfull og hefur það yfir fjölmörgum sterkum vörumerkjum að ráða. Ég hlakka til að leiða fyrirtækið áfram til framtíðar með þeim framúrskarandi mannauði sem hjá því starfar,“ segir Sigríður Hrefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK