ChangeGroup tekur við af Arion banka

Frá Leifsstöð.
Frá Leifsstöð. mbl.is

ChangeGroup, alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármálaþjónustu á alþjóðaflugvöllum, varð hlutskarpast í útboði Isavia varðandi fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia en þar segir ennfremur að ChangeGroup hafi átt hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. 

Fyrirtækið, sem tekur við af Arion banka þann 1. febrúar næstkomandi, verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum

„Opnað var fyrir útboð fyrir fjármálaþjónustu á fyrra hluta þessa árs og sendu þrjú fyrirtæki inn lokatilboð. Boðinn var út, til fimm ára, rekstur gjaldeyrisþjónustu, hraðbanka og þjónustu vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts á Keflavíkurflugvelli. Við mat á tilboðunum var horft til tveggja meginþátta, annars vegar fjárhagslegra og hins vegar tæknilegra þátta sem snúa að þjónustu við viðskiptavini, hönnun og sjálfbærni. Sérfræðiteymi eru á bak við matsflokkana,“ segir í tilkynningu frá Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK