Fólk hugi betur að veskinu við jólainnkaupin í ár

Íslendingar hyggjast eyða minna í jólagjafir í ár en í …
Íslendingar hyggjast eyða minna í jólagjafir í ár en í fyrra mbl.is/Golli

Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) spáir 0,29% samdrætti í smásöluverslun um jólin á föstu verðlagi. RSV spáir að jólaverslun í smásölu verði 135,9 milljarðar króna en spáin nær yfir bæði nóvember og desember mánuð.

Jólaverslunin árið 2022 var 126,1 milljarður króna. Þetta segir í tilkynningu frá RSV, sem segir það nokkuð ljóst að landsmenn séu fyrr á ferðinni í ár heldur en oft áður vegna tilboðsdaga á borð við Dag einhleypra, Svartan föstudag og Stafrænan mánudag.

Aftur á móti gefi hækkandi stýrivextir, 8% verðbólga og hækkun matarkörfunnar í skyn að landsmenn hugi betur að veskinu í ár. Þá hefur færst í aukana að fólk sé að klára jólainnkaupin fyrr en áður, segir í tilkynningunni.

Einkaneysla hækkað um 12,9%

Einkaneysla hefur hækkað um 12,9% að meðaltali á árinu. Það má rekja til hækkun vöruverðs en innlend velta í dagvöruverslun hefur hækkað um 17,7% á árinu. Þá hefur verið aukning í smásöluverslun samkvæmt virðisaukaskattskýrslum um 10,1% á árinu.

Þróun Kortaveltu RSV á árinu hefur sýnt að árið fór mun betur af stað en árið á undan en það hægðist svo á neyslunni þegar líða fór á haustið. Væntingavísitala Gallup hefur að meðaltali lækkað um 11,6% á árinu en væntingavísitalan metur stöðu efnahagsástandsins og atvinnuástandsins hverju sinni.

Íslendingar hyggjast eyða 12.000 kr. minna í jólagjafir í ár en í fyrra

RSV gerði könnun í samstarfi við Prósent um hvað Íslendingar hyggjast eyða miklu í jólagjafir í ár. Íslendingar ætla að eyða um 99.000 kr. í jólagjafir í ár í samanburði við 111.000 kr. í fyrra. Það er 11,3% lækkun á milli ára.

Þá er lækkunin hlutfallslega mest hjá fólki 65 ára og eldri en konur eru líklegri til að eyða meiru í jólagjafir en karlar í ár. Gögnunum var safnað frá 9. til 20. nóvember 2023 og var úrtakið 1.800 manns en svarhlutfallið 52%.

Jólaspá RSV horfir til þróun kaupmáttar launa og vísitölu neysluverðs, þróun kortaveltu, þróun einkaneyslu, þróun smásöluverslunar samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum, vísitölu RSV um smásöluverslun og væntingavísitölu Gallup.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK