Hörn, Jóhanna og Vala til Defend Iceland

Þær Vala Smáradóttir, Hörn Valdimarsdóttir og Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir hafa …
Þær Vala Smáradóttir, Hörn Valdimarsdóttir og Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir hafa gengið til liðs við Defend Iceland. Samsett mynd

Þær Hörn Valdimarsdóttir, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir og Vala Smáradóttir hafa gengið til liðs við Defend Iceland og mynda, ásamt stofnandanum Theódóri Ragnari Gíslasyni, stofnteymi Defend Iceland.

Finna öryggisveikleika

Fram kemur í tilkynningu að verkefnið Verjum Ísland, eða Defend Iceland, sé svokölluð villuveiðigátt þar sem öryggissérfræðingar úr mörgum áttum og með ólíkan bakgrunn leiði saman krafta sína í því skyni að koma í veg fyrir alvarleg innbrot í net-, tölvu- og hugbúnaðarkerfi fyrirtækja og stofnana.

Segir jafnframt að villuveiðigáttir séu þekkt leið til að virkja öryggissérfræðinga sem hermi aðferðir hakkara við leit að öryggisveikleikum. Þá sé markmið Defend Iceland að finna öryggisveikleika á undan tölvuglæpamönnum og sjá til þess að þeir verði lagfærðir áður en hægt sé að valda alvarlegum skaða. 

Nýtt teymi

Þá er tekið fram í tilkynningunni að Hörn Valdimarsdóttir sé rekstrarstjóri og hluti af stofnteymi Defend Iceland.

„Hún hefur starfað við mannauðsmál frá árinu 2019 og vann hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Tempo Software áður en hún hóf störf sem mannauðsstjóri Syndis árið 2022. Hörn er með BSc gráðu í sálfræði og MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.“

Segir einnig að Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir sé framkvæmdastjóri nýsköpunar, sölu og markaðsmála og hluti af stofnteymi Defend Iceland.

„Hún kemur til Defend Iceland frá Almannarómi – miðstöð máltækni, þar sem hún var framkvæmdastjóri. Áður starfaði hún meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík og forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Straumi fjárfestingarbanka. Jóhanna Vigdís er með MBA gráðu frá HR og AMP gráðu frá IESE Business School.“

Þá er Vala Smáradóttir framkvæmdastjóri vöru- og verkefnastýringar og hluti af stofnteymi Defend Iceland.

„Hún hefur síðustu ár unnið að verkefnum í stafrænum umbreytingum og nýsköpun á sviði sjálfbærni og vöru- og hugbúnaðarþróunar. Hún er með bakgrunn í verkefnastjórnun, hagnýtum markaðsfræðum og miðlun. Vala er með BA gráðu í ensku og MA gráðu í hagnýtri menningarmiðlun auk viðbótardiplóma í kennslufræðum.“

Theódór Ragnar Gíslason er stofnandi Defend Iceland.
Theódór Ragnar Gíslason er stofnandi Defend Iceland. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta villuveiðigátt Íslands

Defend Iceland var stofnað í fyrra og eru Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík meðal samstarfsaðila verkefnisins. Hefur það hlotið 2,6 milljóna evra styrk frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem jafngildir um 400 milljónum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK