Össur stofnar móðurfélagið Embla Medical

Húsnæði Össurar.
Húsnæði Össurar. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Össurar hf. hefur lagt til við aðalfund Össurar sem fram fer í næsta mánuði að móðurfélag félagsins taki upp nafnið Embla Medical hf.

Markmiðið með þessum breytingum er að styðja við stefnu og vöxt félagsins, að því er segir í tilkynningu.

„Á síðustu árum hefur félagið haslað sér völl á fleiri sviðum heilbrigðistækninnar. Sérstaðan er sem fyrr vörur og þjónusta við einstaklinga sem glíma við varanlega takmörkun á hreyfanleika. Fyrirtækjakaup hafa verið stór þáttur í þessari þróun og starfrækir félagið nú nokkur vörumerki, sem öll hafa mismunandi hlutverk. Samþykki aðalfundurinn breytinguna munu vörumerkin Össur, ForMotion, College Park og Fior & Gentz starfa undir hatti Emblu Medical, en kaup Össurar á Fior & Gentz voru kynnt í byrjun þessa árs,” segir í tilkynningunni.

„Þá er það mat stjórnarinnar að með breyttu skipulagi verði félagið betur í stakk búið til að halda áfram sókn sinni á stærri markaði. Starfsemi Össurar verður óbreytt með þróun, framleiðslu og sölu á stoð- og stuðningstækjum,” segir þar einnig.

Ljósmynd/Aðsend

Nafnið Embla varð fyrir valinu þar sem uppruni félagsins hér á landi er stór hluti af menningu þess og gildum. Höfuðstöðvar Emblu Medical verða áfram á Íslandi. Heildarfjöldi starfsfólks á heimsvísu er um 4.000, þar af um 700 hér á landi. Félagið verður áfram skráð í kauphöllinni í Kaupmannahöfn undir merkjum Emblu Medical.

„Þetta er stór áfangi í sögu Össurar. Breytingarnar eru til marks um að fyrirtækið er að stækka og þróast. Embla Medical er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem þróar og framleiðir fjölbreyttar vörur sem eiga það allar sameiginlegt að bæta hreyfanleika fólks og auka lífsgæði. Auk þess vinnum við beint með sjúklingum og notendum víða um heim. Markmiðið er að koma lausnum okkar til sem flestra og þannig stuðla að því að fólk geti lifað lífi sínu án takmarkana. Á því byggir öll okkar starfsemi. Með þessum breytingum erum við að stilla skipulag saman við stefnu, “ segir Sveinn Sölvason forstjóri, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK