Geta eytt meiri tíma með íbúum

Fulltrúar Eirar og Helix við undirritun samnings. Stefán Alfreð Stefánsson, …
Fulltrúar Eirar og Helix við undirritun samnings. Stefán Alfreð Stefánsson, Fjóla Bjarnadóttir, Arna Harðardóttir, Magnús Már Steinþórsson, Íris Dögg Guðjónsdóttir, Eybjörg Helga Hauksdóttir, Þórólfur Ingi Þórsson og Þórdís Hulda Tómasdóttir Ljósmynd/Haraldur Jónason

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar hafa undirritað samning við heilbrigðistæknifyrirtækið Helix um innleiðingu á lausnunum Iðunni og Lyfjavaka.

Í fréttatilkynningu segir að lausnirnar muni bæta yfirsýn, auka öryggi íbúa og flýta fyrir skráningu á lyfja- og heilbrigðisgögnum. Þannig muni starfsfólk geta varið meiri tíma með íbúum hjúkrunarheimilanna, samfella í meðferð íbúa muni aukast og minni tími fari í stöðufundi og skráningar í gagnagrunnum.

Myndir af sárum

Smáforritið Iðunn nýtist starfsfólki á hjúkrunarheimilum til þess að skrá helstu upplýsingar um hjúkrunarmeðferðir íbúa í rauntíma samkvæmt fréttatilkynningunni.  „Í smáforritinu er meðal annars hægt að haka við framkvæmd tiltekinna verka, skrá niðurstöður mælinga, taka myndir af sárum til að meta framgang meðferðar og hringja beint í aðstandendur. Allar skráðar upplýsingar í smáforritinu færast sjálfkrafa inn í Sögu, sjúkraskrá íbúans.“

Í tilkynningunni segir að Lyfjavaki sé rafrænt lyfjaskráningarkerfi sem geri hjúkrunarfræðingum kleift að halda utan um skráningar á lyfjatiltekt og lyfjagjöfum íbúa. Sérþjálfað starfsfólk geti notast við smáforrit til að staðfesta lyfjagjafir sem hafa verið teknar til af hjúkrunarfræðingum. Með notkun Lyfjavaka sé tryggt að rekjanleiki lyfjagjafa sé í samræmi við þær kröfur sem gilda um slíka skráningu.

Virkir þátttakendur

„Við á Eir, Skjóli og Hömrum teljum mikilvægt að vera virkir þátttakendur í þróun heilbrigðislausna í okkar starfsemi og höfum góða reynslu af samstarfi við Origo (nú Helix) í gegnum árin. Við teljum ljóst að þessi innleiðing muni auka gæði í umönnunarþjónustu við okkar skjólstæðinga, auka öryggi í allri lyfjaumsýslu á heimilunum og auðvelda starfsfólki okkar að sinna sínum mikilvægu verkefnum," segir Eybjörg Helga Hauksdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Eir, Hömrum og Skjóli í fréttatilkynningunni.

„Stafvæðing skráningar í heilbrigðiskerfinu er grunnurinn að því að hagnýta heilbrigðisgögn. Við höfum séð að skráning verður ítarlegri fyrir hvern íbúa þar sem Iðunn hefur verið innleidd og samhliða því hefur tíminn sem heilbrigðisstarfsfólk eyðir í skráningu styst umtalsvert. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Eir, Skjól og Hamra og vonumst til að geta létt undir starfsfólki heimilanna með lausnunum okkar," segir Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix að lokum í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK