Þuríður nýr sparisjóðsstjóri

Jón Einar Marteinsson, formaður stjórnar Sparisjóðsins, ásamt Þuríði og Vilhjálmi.
Jón Einar Marteinsson, formaður stjórnar Sparisjóðsins, ásamt Þuríði og Vilhjálmi. Ljósmynd/Aðsend

Þuríður Jónsdóttir hefur verið ráðin sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Austurlands hf., en Vilhjálmur Grétar Pálsson mun láta af því starfi í lok september.

Þuríður er viðskiptafræðingur að mennt, Cand Oceon frá Háskóla Íslands. Hún hefur veitt forstöðu útibúi Deloitte ehf. í Neskaupstað og hóf þar störf árið 1996.  Þar hefur hún unnið að fjölbreyttum verkefnum: endurskoðun og ársuppgjörum, stofnun og sölu fyrirtækja,  áætlanagerð og skattamálum. Þar áður vann hún hjá Sparisjóðnum.  Þuríður hefur víðtæka reynslu og þekkir vel til atvinnulífs á starfssvæði Sparisjóðsins og hefur því góða þekkingu á starfsumhverfi hans, að því er segir í tilkynningu.

Þuríður er gift Axel Ísakssyni fjármálastjóra Síldarvinnslunnar hf. og eiga þau einn son. Gert er ráð fyrir að Þuríður hefji störf í júnímánuði næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK