KEA eykur við hlut sinn í Norlandair

Twin-Otter-flugvél frá Norlandair á Grímseyjarflugvelli.
Twin-Otter-flugvél frá Norlandair á Grímseyjarflugvelli. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

KEA hefur keypt rúmlega 21% hlutafjár í Norlandair og verður eftir viðskiptin stærsti hluthafi félagsins með 43% eignarhlut.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 

Þar segir að samhliða þessum viðskiptum sé Air Greenland einnig að auka við hlut sinn í félaginu og verði næststærsti hluthafi þess.

Norlandair með höfuðstöðvar á Akureyri

Þá kemur fram að í þessum viðskiptum hafi Friðrik Adolfsson, Kaldbakur og Mýflug verið að selja eignarhluti sína en Friðrik lét af störfum sem framkvæmdastjóri Norlandair vegna aldurs um nýliðin áramót og við starfi hans hefur tekið Arnar Friðriksson.

KEA hefur verið hluthafi í Norlandair allt frá stofnun þess árið 2008.

„Norlandair er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri og sinnir sérhæfðu leiguflugi á Grænlandi auk þess að fljúga innanlands í áætlunarflugi á minni flugvelli.

Um síðustu áramót tók Norlandair við sjúkraflugi innanlands til næstu 3ja ára og hefur flugfloti félagsins verið stækkaður þess vegna. Nú er félagið með 3 Twin-Otter og 3 King Air flugvélar í rekstri og áætluð velta þessa árs eru tæpir 3 milljarðar króna. Hjá félaginu eru um 35 stöðugildi.“

Leggja áherslu á að fækka verkefnum

„Það eru mörg spennandi verkefni sem félagið stendur frammi fyrir og við viljum gera gott fyrirtæki betra í samstarfi við aðra hluthafa og starfsmenn þess. Fjárhagur félagsins er traustur og afkoma hefur lengi verið með ágætum. Kaup þessi eru í samræmi við áherslur okkar um að fækka verkefnum en um leið að stækka þau verkefni sem við komum að,” segir Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK