Míla fagnar ákvörðun Fjarskiptastofu

Fjarskiptafyrirtækið Míla.
Fjarskiptafyrirtækið Míla. Mynd/Míla

Fjarskiptafyrirtækið Míla fagnar ákvörðun Fjarskiptastofu sem felur í sér niðurfellingu kvaða á hendur Mílu á tveimur mikilvægustu undirmörkuðum fjarskipta á Íslandi þar sem yfir 80% landsmanna búa, þar með talið á stórhöfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu en þar segir að það sé mat Fjarskiptastofu að á því svæði ríki virk samkeppni og byggir þar á ítarlegri markaðsgreiningu sem fól í sér samstarf við innlenda hagsmunaaðila, Samkeppniseftirlitið og Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel.

Er íslenskum neytendum í hag

„Ákvörðun Fjarskiptastofu felur í sér að kvaðir eru felldar niður á Mílu á mörkuðum fjarskipta á Íslandi þar sem yfir 80% landsmanna búa. Hún er samkeppni og íslenskum neytendum í hag,“ er haft eftir Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu, í tilkynningunni.

Míla segir að Samkeppniseftirlitið hafi þýðingarmiklu hlutverki að gegna við að standa vörð um virka samkeppni, veita markaðsaðilum aðhald og ryðja úr vegi mögulegum hindrunum, sem og kvöðum sem ekki eru lengur réttlætanleg skilyrði fyrir.

Fram kemur að Míla fagni þessari tímamóta ákvörðun Fjarskiptastofu en bendir um leið á að enn sé í fullu gildi kvaðir á Mílu á sömu mörkuðum samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2022. Þær þyrfti að fella niður til samræmis við ákvörðun Fjarskiptastofu.

Ákvörðun Fjarskiptastofu má sjá HÉR

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK