Vodafone gerir samning um internettengingar í bíla

Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone.
Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone.

Vodafone á Íslandi hefur náð samning við Vodafone Group um að vera eitt af þrjátíu löndum í heiminum sem bjóða upp á internettengingu í bílum með því að nota hlutanetstækni (IoT).

Þeir markaðir sem að hafa náð samningum við Vodafone Group um að bjóða viðskiptavinum að tengjast interneti í bílum eru Búlgaría, Króatía, Kýpur, Eistland, Lettland, Litháen, Malta, Monakó, Slóvenía og Ísland.

Með því að nýta hlutanetstækni frá Vodafone Group og staðbundnar fjarskiptalausnir geta viðskiptavinir Vodafone í framtíðinni notið þess að vera með internettengingu í bílnum til að tengjast app- og veflausnum sem krefjast háhraða internettenginga. Internet í bílnum kemur í stað fyrir 4G/5G farsímatengingar og munurinn er að bíllinn er með betra loftnet sem skilar betri gæðum.

Um tímamótasamning að ræða

Haft er eftir Sesselíu Birgisdóttur, framkvæmdastjóra Vodafone í fréttatilkynningu að um tímamótasamning sé að ræða.

„Nú munum við geta boðið viðskiptavinum okkar upp á enn betri lausnir með háhraðaneti beint í bílinn og með nýtingu á nýjustu hlutanetstækni verða netgæðin í bílnum eins góð og heima í stofu. Viðskiptavinir munu fá frítt gagnamagn með flestum tegundum nýrra bíla í framtíðinni og þegar það klárast geta þeir keypt viðbótar gagnamagn hjá okkur,“ segir Sesselía.

„Í samstarfi við bílaumboðin á Íslandi munum við kynna fyrir viðskiptavinum hvar þjónustan verður í boði, en það er mismunandi eftir bílaframleiðendum. Háhraða internettenging í bílum hvar og hvenær sem er mun gera líf okkar enn einfaldara, til dæmis með því að ná hugbúnaðar uppfærslum í bílinn. Við erum spennt fyrir að kynna þessa þjónustu betur fyrir viðskiptavinum. Okkur þykir þó alltaf mikilvægt að minna á að þó netgæðin verði betri í bílnum á enginn á að nota símann sinn undir akstri,“ segir Sesselía ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK