Base parking úrskurðað gjaldþrota

BaseParking geymdi bíla viðskiptavina á stæði á Ásbrú.
BaseParking geymdi bíla viðskiptavina á stæði á Ásbrú. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bílastæðafyrirtækið Base parking ehf., sem rak samnefnda þjónustu fyrir farþega sem fóru um Keflavíkurflugvöll, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Hefur nafni félagsins verið breytt í Siglt í stand ehf.

Gjaldþrotaúrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness 8. maí, en auglýsing um gjaldþrotið var birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Hefur vefsíðu fyrirtækisins einnig verið lokað.

Fyrirtækið bauð meðal annars upp á þá þjónustu að sækja bifreiðar viðskiptavina sem voru á leið erlendis og geyma þær á bílastæði fyrirtækisins á Ásbrú. 

Stofnendur Base Parking voru þeir Njáll Skarphéðinsson og Ómar Þröstur …
Stofnendur Base Parking voru þeir Njáll Skarphéðinsson og Ómar Þröstur Hjaltason. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK