Það er ánægjulegt að fylgjast með notkun Kópavogsbæjar á Vísitölu félagslegra framfara (VFF) en það felur í sér nýja nálgun hjá bænum við að mæla árangur þar sem ekki er unnið út frá efnahagslegum forsendum heldur félagslegum þáttum. Kópavogur er fyrsta sveitarfélagið til að ráðast í þetta og er ekki að efa að fleiri sveitarfélög fylgjast með tilraun þeirra.
Í verkefninu eru teknir út þættir sem bærinn vill mæla og varða líðan íbúa. Mælingar VFF hjálpa til við að fylgjast með því hvernig til tekst að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem nýlega var fjallað um hér. Mælikvarðinn hefur verið notaður af einstaka þjóðum en aldrei af sveitarfélagi af þessari stærð og er því sannarlega um frumkvöðlastarf að ræða. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, er nú staddur í New York til að kynna framtakið á hliðarviðburði í tengslum við ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, High Level Political Forum (HLPF) eins og kom fram í Morgunblaðinu í morgun.
Í pistlum hér hefur margoft verið rætt um Social Progress mælikvarðana sem byggjast á einstaklega áhugaverðri nálgun til að mæla félagslegar framfarir en áreiðanlegir mælikvarðar er helst það sem skortir við slíkan samanburð. Þessir mælikvarðar eru enn á þróunarstigi en lofa góðu. Ísland hefur gert sitt til að kynna Social Progress mælikvarðann enda kemur íslenskt samfélag undantekningalaust vel út þar.
Á að skila sér í betri þjónustu
„Notkun vísitölunnar á að skila sér í að þjónustan við íbúana verði betri, verkefnin markvissari og þar með fjárhagsáætlanagerðin. Vísitalan er nýleg aðferð til þess að mæla styrkleika samfélagslegra innviða Kópavogs,“ segir Ármann í viðtali við Morgunblaðið. Þess má geta að það hefur náðst þverpólitísku sátt í bæjarstjórn Kópavogs í kringum verkefnið sem hefur þegar hlotið ýmsar viðurkenningar.
Kópavogsbær hefur látið smíða sérstakan hugbúnað sem byggi á þáttum vísitölunnar og miklu magni af gögnum um fjölbreyttan rekstur bæjarins. Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að nálgun Kópavogs hefur vakið athygli Social Progress Imperative-stofnunarinnar sem tekur saman mælikvarðann sem notaður er í VFF.
„Vinnan við undirbúning notkunar á vísitölunni hófst 2017 og fyrsta skorkortið var birt í vor. Niðurstöður mælinganna notum við í frammistöðumati á framkvæmdir og til að styrkja stýringu og skilvirkni opinberrar fjárfestingar,“ segir Ármann og bætir við að afraksturinn skili sér í aukinni velferð íbúa og betri nýtingu á skattfé íbúanna.
Kópavogsbær frumsýndi í dag myndband á fésbókarsíðu sinni um nálgun Kópavogsbæjar á notkun vísitölu félagslegra framfara.