Fóru ofan í gíginn
Kort og skýringarmyndir
Lítil áhrif eldgoss á heilsufar búfjár
Rannsóknir, sem gerðar voru í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli á síðasta ári, benda ekki til þess að öskufallið úr jöklinum hafi haft veruleg áhrif á heislufar búfjár. Meira
250 milljónir í gosbætur
Ríkissjóður áætlar að greiða 250 milljónir króna í bætur til bænda undir Eyjafjöllum sem urðu fyrir tjóni vegna öskunnar frá eldgosinu í Eyjafjallajökli í fyrra. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Meira
Ferðamönnum fækkaði um 1-2%
Forsvarsmenn í ferðamálum eru sammála um að áhrif eldgosa ársins 2010 á ferðaþjónustu séu jákvæð, þegar til langs tíma sé litið. Ísland hafi fengið mikla kynningu. Meira
Ekki greitt fyrir vinnu við þrif
Ekki verður bætt tjón sem varð á landbúnaðarvélum og tækjum í eldgosinu í Eyjafjallajökli. Vinnu sem íbúar lögðu í þrif innanhúss vegna þráláts öskuryks eða skemmdum á útihúsgögnum og pöllum. Þetta kemur fram á vef almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Meira
Bætur vegna tafa af gosi
Talsvert meira en endranær var um kvartanir farþega vegna seinkana í flugi á þessu ári, aðallega vegna gossins í Eyjafjallajökli í vor, að sögn Flugmálastjórnar, Neytendastofu og Neytendasamtakanna. Meira
Bíða enn eftir bótagreiðslum
Þúsundir ferðamanna, sem þurftu að gera breytingar á ferðaáætlunum sínum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli í apríl og maí, hafa ekki fengið greiddar bætur frá flugfélögum sem þeir áttu pantað flug með. Samkvæmt frétt Daily Mail er þetta ólöglegt og ljóst að einhverjir fá ekki greitt fyrr en 2011. Meira
Icelandair greiðir tjón aðeins að hluta
Flugfarþegar sem urðu fyrir töfum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og urðu að greiða misjafnlega mikið fyrir gistingu og máltíðir á meðan töfinni stóð hafa nú aðeins fengið bætt tjón sitt að hluta frá Icelandair. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. Meira
„Virðist bara rjúka endalaust þegar vindur blæs“
„Þetta hefur gerst þó nokkuð oft undanfarna daga. Þá hefur verið norðanátt og það virðist bara rjúka endalaust þegar vindur blæs úr norðri í svona þurru veðri.“ Meira
Sótti öskubók til Hollands
„Eldgosið virðist í eftirleiknum ætla að opna okkur ýmis tækifæri þrátt fyrir ýmsa óleysta erfiðleika,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra. Meira
Birkiskógar óskemmdir eftir eldgosið
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti nýverið Þórsmörk og Goðaland í boði Skógræktar ríkisins til að skoða áhrif öskugossins í Eyjafjallajökli á birkiskóga. Skógarnir virðast ekki hafa borið neinn skaða af öskufalli úr Eyjafjallajökli. Þvert á móti virðist spretta skógargróðurs hafa verið með allra besta móti, hvort sem það er eingöngu vegna ákaflega hlýs sumars eða einnig vegna áburðaráhrifa af öskunni. Meira
Vilja ekki lýsa yfir goslokum strax
Enn er ekki hægt að lýsa yfir formlegum goslokum í Eyjafjallajökli. Vísindamannaráð Almannavarna fundaði í gær en var ekki reiðubúið að lýsa yfir goslokum enn sem komið er. Meira
Geta reynst lífshættulegar
Koltvísýringur sem berst í Hvanná við Þórsmörk úr hraunkvikunni á Fimmvörðuhálsi safnast fyrir í dældum og getur valdið köfnun en skammt er síðan doktorsnemi í jarðfræði fékk væga gaseitrun við mælingar á ánni. Koltvísýringurinn hefur myndað útfellingar í botni árinnar. Meira
Express ferðum gert að endurgreiða
Farþegar Express ferða, sem áttu pantaðar pakkaferðir sem var aflýst vegna eldgossins í Eyjafjallajökli eiga rétt á að fá þá fjármuni endurgreidda sem þeir voru búnir að greiða. Þetta kemur fram í ákvörðun Neytendastofu. Meira
Gosráðstefna fær heimsathygli
Ráðstefna, sem Flugakademía Keilis stendur fyrir hér á landi í september um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur, er farin að vekja mikla athygli. Samkvæmt frétt Reuters er von á yfir 300 sérfræðingum í jarðvísindum og flugmálum víðs vegar að úr heiminum. Ráðstefnan fer fram 15.-16. september nk. á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Meira
Styttist í gosbætur frá Icelandair
Tæplega tvö þúsund bótamál eru til skoðunar hjá Icelandair vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins. Hann segir að vinnan hafi gengið ágætlega en hvert mál þurfi að skoða sérstaklega. Stefnt er að því að þessari vinnu ljúki með haustinu. Meira
Aukin hætta á eðjuflóðum
Vegna úrkomu er aukin hætta á eðjuflóðum frá Eyjafjallajökli að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavörnum. Vegfarendur um Suðurlandsveg (þjóðveg 1) og um veginn inn í Þórsmörk eru beðnir um að sýna aðgát. Meira
Bíða enn eftir skaðabótum vegna eldgossins
Hundruð breskra fjölskyldna bíða enn eftir því að fá greiddar bætur frá hollenska flugfélaginu KLM vegna röskunar sem varð á ferðum þeirra vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Meira
Varað við ferðum í Þórsmörk
Varnargarður við Markarfljót á Þórsmerkurleiðinni brast í morgun og er ekki ráðlegt fyrir aðra en þá sem eru á sérútbúnum fjallabílum að fara inn í Þórsmörk. Ragnheiður Hauksdóttir, landvörður í Húsadal, segir Markarfljótið renna yfir veginn á löngum kafla og varar fólk við að keyra þessa leið. Meira
Ferðasumarið fínt en heildarmyndin er enn ekki orðin ljós
„Sumarið ætlar að verða fínt og raunar betra en í fyrra, þó heildarmyndin sé enn ekki orðin ljós,“ segir Laufey Helgadóttir, hótelhaldari á Smyrlabjörgum í Suðursveit. Meira
Vatnajökull bráðnar í hlýindunum í sumar og hratt gengur á höfuðstól
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hlýindi í veðri og svartur möttull ösku sem liggur yfir stórum hluta Vatnajökuls veldur því að bráðnun í sumar hefur verið með mesta móti. Meira
140 milljón rúmmetrar
Fara verður allt aftur til Kötlugossins 1918 eða Heklugossins 1947 til að finna eldgos sem losuðu gjósku í sambærilegu magni og það sem kom upp í eldgosinu í Eyjafjallajökli í vor. Meira
Kólnar hægt og örugglega
„Þetta kólnar hægt og örugglega og engar vísbendingar um að nokkuð sé að gerast. Það er enn of snemmt að lýsa yfir goslokum. Ef ekkert gerist meira þá vitum við það eftir á að gosinu hafi lokið í byrjun júní," segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, spurður um stöðuna á gosstöðvunum í Eyjafjallajökli. Meira
Seljavallalaug hefur breyst í sandkassa
„Dalurinn var fallegur. Þarna var allt iðjagrænt og litlir lækir í hverri einustu skoru. Nú er dalurinn eins og dauðs manns gröf,“ segir Páll Andrésson, Eyfellingur og unnandi Seljavallalaugar í Morgunblaðinu í dag. Meira
Snertu og hlustuðu á Sólheimajökul en sáu hann ekki
Átta þýskir göngumenn gengu á Sólheimajökul í gær. Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi nema hvað áttmenningarnir eru blindir með öllu. Meira






Senda inn efni


