Það er til marks um aukin umsvif á bílamarkaði eftir alltof mörg mögur ár í kjölfar hrunsins að nýtt bílaumboð haslar sér völl. Fyrirtækið heitir Ís-Band – sem stendur fyrir Íslensk-Bandaríska.
Er það umboðsaðili fyrir Fiat Chrysler hér á landi en fyrirtækið hefur þess utan verið öflugt við innflutning á jeppum frá Jeep og Dodge auk Ram-pallbílanna. Það er því við hæfi að máta eins og einn jeppa frá Jeep til að bjóða Ís-Band velkomna til leiks og úr varð að reynsluaka Jeep Renegade í svokallaðri Trailhawk-útgáfu.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að í seinni tíð hefur það færst í aukana að framleiddir séu bílar með „sérstakt“ útlit til að mæta óskum og kröfum þeirra sem vilja skera sig úr. Meðal slíkra ökutækja má nefna bæði Nissan Juke og Citroën Cactus; bílar sem sumir elska og aðrir elska að hata. Hvorum megin sem fólk skipar sér í sveit þá er óumdeilt að eftir slíkum bílum er tekið á götunum og þesslegur bíll er Jeep Renegade. Hann er reffilegur að sjá og snaggaralegur og sigraði undirritaðan ekki við fyrstu sýn. En reynsluakstur yfir röska tvo sólarhringa mýkti mig allnokkuð í afstöðu minni til bílsins því hann reyndist fínasti akstursbíll, þéttur og góður, og að skilnaði má segja að ég hafi „skilið“ hann betur. Þar sem um alvöru jeppa er að ræða, með háu og lágu drifi vel að merkja, þá má hann alveg vera svolítið óbyggðalegur í laginu. Það fer honum bara vel.
Að innan kemur Renegade skemmtilega á óvart. Það er talsvert lagt í hönnunina og þó er ekkert pjatt í gangi heldur rímar útlitið innandyra vel við ytra byrðið. Hér virkar allt traust og rammgert og ökumaður fær gott öryggi á tilfinninguna. Trailhawk-útgáfan sem reynd var skartar skemmtilegum áhersluumgjörðum kringum gírstöng, hátalara og aðra slíka staði og ljær bílnum skemmtilegan svip að innan og brýtur upp annars kolsvarta innréttinguna. Mælaborð og aðstaða ökumanns er vel heppnuð, góður snertiskjár heldur utan um helstu hluti sem þarf að eiga við og hátalararnir, sem eru frá Beats By DrDre, skila fínasta hljóði. Plássið er gott og einkum er hátt til lofts, sem gerir bílinn þægilegan til ferðalaga.
Fyrst í stað virkaði Trailhawk eilítið stirðbusalegur en þegar undirritaður vandist bílnum og fann taktinn, ef svo má segja, samdi okkur prýðilega. Þetta er jeppi, svo því sé haldið til haga. Trailhawk er kraftmesta útfærslan af Jeep Renegade og vélin með sínum 170 hestöflum skilar togi sem nemur 350 Nm og bíllinn er skemmtilega kvikur þegar gefið er í. Reyndar gafst ekki færi á að prófa bílinn almennilega utanvega en hann býr að skínandi góðri fjöðrun sem væntanlega er til marks um ágætis eiginleika þegar komið er út fyrir malbikið.
Jeep Renegade Trailhawk er skikkanlega verðlagður fyrir jeppann sem hann er og kostar frá tæpum sex milljónum króna. Fyrir hópinn sem eltist við bíla sem eru auðþekkjanlegir á sérstöku útliti og skera sig úr í umferðinni er hér kominn jeppi sem telst býsna góður kostur.