Iveco sendibíll ársins

Iveco Daily Blue Power.
Iveco Daily Blue Power.

Blákraftur daglegi, ef svo mætti snara bílheitinu, hefur verið valinn sendibíll ársins 2018 á alþjóðavísu af dómnefnd bílablaðamanna frá 25 löndum.

Fór útnefningin fram á flutningabílasýningunni Solutrans sem hófst í Lyon í Frakklandi um helgina. Heiti bílsins sem þýtt var hér að framan er Iveco Daily Blue Power.

Hörð samkeppni var um sæmdartitilinn en í fréttum af sýningunni segir að með titlinum hafi Iveco fengið góða viðurkenningu á áherslu sinni á nýtækni til að auka burðargetu og nýtni bílsins.

Í niðurstöðum dómnefndar segir að Daily Blue Power-bíllinn sé búinn lausnum sem til þess eru fallnar að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum léttra atvinnubíla jafnt í bæjum og sveitum.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: