Nýr Santa Fe lítur dagsins ljós

Hyundai Motor hefur birt fyrstu myndina af nýrri og enn glæsilegri kynslóð fjórhjóladrifna
sportjeppans Santa Fe sem frumsýndur verður formlega síðar í þessum mánuði.

Santa Fe er flaggskip Hyundai í fólksbílaflokki og endurspeglar alla helstu styrkleikana sem Hyundai býr yfir við þróun bíla í þessum flokki. „Þessir styrkleikar birtast ekki síst í miklum vinsældum mismunandi gerða sportjeppa Hyundai  meðal almennings víða um heim þar sem ný, fjórða kynslóð Santa Fe fer fremst í flokki með mesta vélaraflinu og rýminu ásamt vandaðri hönnun í sérflokki,“ segir í tilkynningu.

Myndin sem nú borist af Santa Fe endurspeglar meðal annars nýtt útlit framenda fólksbíla Hyundai sem fyrst birtist í Kona sem kynnt var seint á síðasta ári. Heildaryfirbragð á útliti bílsins er kröftugt og endurspeglar fjölbreytta getu Santa Fe við mismunandi aðstæður. Í eins og sjá má á mynd úr rúmgóðu og vönduðu farþegarýminu getur þar einnig að líta ýmsar nýjungar sem kynntar verða betur þegar bíllinn verður kynntur formlega síðar í febrúar.

Santa Fe verður síðan áberandi á bílasýningunni sem hefst í Genf í byrjun mars.

mbl.is