Sex Iveco farþegarútur til Airport Direct

Torfi G. Yngvason, framkvæmdastjóri Airport Direct, við einn nýju bílanna …
Torfi G. Yngvason, framkvæmdastjóri Airport Direct, við einn nýju bílanna sem komnir eru í reglulega áætlun milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar.

Fyrirtækið Airport Direct, sem hóf reglulegar ferðir með farþega milli Reykjavíkur og
Keflavíkurflugvallar þann 1. mars, fékk á dögunum afhentar sex nýjar 53ja sæta farþegarútur
af gerðinni Iveco Evadys frá BL, umboðsaðila framleiðandans hér á landi.

Um er að ræða nýja gerð fólksflutningabifreiða sem Iveco Bus setti á markað á síðasta ári og voru bílar Airport Direct þeir fyrstu sem afhentir voru hér á landi. Við hvert sæti er fullkominn
snertiskjár þar sem farþegar geta bókað og greitt fyrir ýmsar ferðir sem aðilar í ferðaþjónustu bjóða gestum hér á landi auk USB-innstungu til að hlaða efni á skjáinn og njóta á leið til eða frá flugvellinum.

Byggir á farsælum leiðtoga

Hönnun Evadys-rútunnar byggir á Iveco Crossway sem er vinsælasta hópferðabifreið Evrópu.
Alls eru um 120 þúsund rútur af þeirri gerð í umferð og voru um 4.200 framleiddar 2017 sem
er mun meira magn en frá nokkrum öðrum framleiðanda á rútu í þessum stærðar- og
notkunarflokki, að því er fram kemur í tilkynningu.

Bregst vel við vindi

Iveco Evadys á Reykjanesbrautinni á leið til Keflavíkur.
Iveco Evadys á Reykjanesbrautinni á leið til Keflavíkur.


Iveco Evadys-rútur Airport Direct eru þrettán metra langar og 3,5 metrar á hæð og taka því
betur við hliðarvindi en margar hærri rútur. Í bílunum er rúmgóð farangurslest og hillur í
farþegarýminu, alls rúmlega tólf rúmmetrar. Rúturnar eru búnar 400 hestafla Iveco Cursor
dísilvél með 1.700Nm togi sem uppfyllir nýjustu og ströngustu mengunarstaðla
Evrópusambandsins, Euro6. Við vélina er tólf gíra rafskiptur gískassi af gerðinni ZF Traxon.

Evadys eru mög þýðir bílar í akstri enda með loftfjöðrunarkerfi sem var sérstaklega hannað fyrir Evadys og hefur reynst ákaflega vel. Rúðuglerið er af nýrri gerð sem Iveco þróaði. Það er
bæði léttara og sterkara en annað rútugler og með einkar fallega áferð til að hámarka gæði
útsýnis fyrir farþegana.

Enda þótt Iveco Evadys sé tæknilega fullkomin rúta tekur hönnunin mið að einfaldleika til
þess m.a. að auðvelda viðhald og þjónustu. Þá byggir rafkerfi Evadys á hinni fullkomnu Can Bus tækni auk þess sem díóður eru í allri lýsingu sem dregur bæði úr orkunotkun og viðhaldskostnaði.

mbl.is