Leaf og Micra með gullverðlaun

Samkvæmt nýrri könnun sem Driver Power study lét gera eru eigendur Leaf og Micra sérdeilis ánægðir með bílinn sinn.

Í könnuninni eru níu flokkar sem metnir eru: 1. Áreiðanleiki og smíðagæði, 2. orkunotkun og rekstrarkostnaður, 3. öryggisbúnaður, 4. vél og gírkassi, 5. aksturseiginleikar og meðgætilriki, 6. innrétting og þægindi, 7. ytra útlit, 8. Hagkvæmni og fótapláss og 9. upplýsingatækni, tengimöguleikar og snjalltækni.

Á grundvelli svara frá bíleigendum sem spurðir voru hlaut Micra gullverðlaun í smábílaflokki (2018 Gold Supermini Award) fyrir að skora hæst í flokki 3, 4, 5, 6 og 9.

Þar sem nýjasta kynslóð Leaf var ekki komin í sölu þegar könnunin fór fram eiga svörin einungis við eigendur Leaf af fyrstu kynslóð sem hlaut gullverðlaun í rafbílaflokki fyrir hæstu einkunn fyrir vél og gírkassa og 3. verðlauna fyrir orkunotkun og rekstrarkostnað.

Kannanir Driver Power eru gerðar af útgáfufyrirtækinu Dennis Publishing sem framkvæmir árlega ein virtustu neytendakannanir á breskum bílamarkaði. Dennis Publishing stendur m.a. að baki útgáfu bílaritanna Auto Express og Carbuyer.

Steve Fowler útgáfustjóri sagði þegar niðurstaða könnunarinnar var kynnt í síðustu viku að smábíllinn Micra væri einn vinsælasti bíllinn í Bretlandi í sínum flokki enda væri hann gríðarlga vel búinn, ekki síst á tæknisviðinu þar sem hann væri í algjörum sérflokki.

Síðan kæmi ekki á óvart að ár eftir ár eftir ár væri Leaf í helstu baráttusætum kannana Driver Power á rabílum enda auðvelt að falla fyrir Leaf þegar sest væri undir stýri. Reynslan sýndi að þeir sem keyptu Leaf væru mjög líklegir til að fá sér aftur Leaf þegar kæmi að endurnýjun. Þess má geta að nýja kynslóð Leaf vann nýlega grænu verðlaun World Car sem grænasti bíllinn 2018.

mbl.is