Þriggja milljónasti Kia-bíllinn

Þorgeir Pálsson og Kjartan Steinarsson afhentu Elvari Unndóri Sveinssyni nýjan …
Þorgeir Pálsson og Kjartan Steinarsson afhentu Elvari Unndóri Sveinssyni nýjan Kia Ceed GT Line sem er sannkallaður tímamótabíll enda bíll númer 3 milljón sem Kia framleiðir fyrir Evrópumarkað.

Kóreski bílsmiðurinn Kia hefur framleitt þrjár milljónir bíla í Evrópu og svo skemmtilega vill til að Kia bíll númer 3.000.000 var afhentur hér á landi í gær, nánar tiltekið hjá K. Steinarsson í Reykjanesbæ.

Um er að ræða hvítan, 5 dyra Kia ceed í GT Line útfærslu. Stoltur eigandi þessa tímamótabíls  heitir Elvar Unndór Sveinsson. Hann fékk bílinn afhentan með viðhöfn í gær og fékk m.a. gjafabréf á Library, HM Monopoly spil, 2 landsliðstreyjur og Kia HM bolta að gjöf frá Bílaumboðinu Öskju.

„Það er sérlega ánægjulegt að bíll númer 3.000.000 sem framleiddur er í Evrópu skuli era afhentur hér á landi. Við erum afar stolt af því og því góða gengi sem Kia hefur náð hér á landi. Merkið hefur var það næst söluhæsta á Íslandi á síðasta ári og hefur verið í þremur efstu sætunum yfir söluhæstu merkin á síðustu árum," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju í tilkynningu.

Kia framleiðir bíla fyrir Evrópumarkað í bílsmiðju sinni í Zilina í Slóvakíu. Þar hafa allar þrjár milljónir bílanna fyrir Evrópumarkað verið framleiddar frá árinu 2006. Á síðasta ári framleiddi Kia alls 335.600 bíla í Zilina sem er hæsta framleiðsla sem bílaframleiðandinn hefur náð á einu ári þar. Í bílsmiðjunni í Zilina starfa tæplega 4.000 starfsmenn. Unnið er á vöktum allan sólarhringinn í verksmiðjunni þannig að framleiðslan stoppar aldrei.

mbl.is