Maroon 5 flytur HM-lag fyrir Hyundai

Hyundai, einn helsti samstarfsaðili FIFA við framkvæmd heimsmeistaramótsins í knattspyrnu
í Rússlandi, átti gott samstarf við bandarísku popphljómsveitina og Grammíverðlaunahafana
í Maroon 5 þegar hljómsveitin tók upp eitt alvinsælasta lag Marley og The Wailers, reggílagið
„Three Little Birds“ frá 1977.

Hljómsveitin er miðpunktur nýrrar kynningar Hyundai á öryggisbúnaði nýrra fólksbíla fyrirtækisins, ekki síst sportjeppanna Santa fe og Kona.

„Lag og texti „Three Little Birds“ endurspegla öryggi, jákvæðni og sigurvilja eins og þann sem
býr í brjósti íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem farið er til Rússlands til að taka í fyrsta
sinn þátt í heimsmeistaramóti FIFA.

Á sama hátt vill Hyundai tjá sigurvilja sinn gegnum framúrskarandi tækniþróun og framleiðslugæði sem gert hafa fólksbíla Hyundai að einhverjum vinsælustu bílunum á markaðnum í dag,“ segir í tilkynningu.

Í sjónvarpsauglýsingum Hyundai sem tileinkuð er HM 2018 leika Maroon 5 lagið Three little
birds sem Grammíverðlaunahafinn Joseph Kahn leikstýrði. Nýjustu og vinsælustu fólksbílum
Hyundai bregður fyrir þar sem varpað er ljósi á öryggisbúnað bílanna sem veitir ökumanni og
farþegum hugarró í umferðinni þar sem allt getur gerst. Upphafsorð textans í laginu njóta
sín hér vel: Ekki hafa minnstu áhyggjur því allt verður í þessu fína lagi.

mbl.is