Langdrægur Kia e-Soul kynntur í Genf

Kia e-Soul verður frumsýndur í Genf á morgun.
Kia e-Soul verður frumsýndur í Genf á morgun.

Nýr Kia e-Soul rafbíll verður kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni sem hefst í Genf á morgun. Nýr e-Soul er 100% rafbíll og losar því enga mengun. Nýr Kia e-Soul er aflmeiri en forverinn með nýjustu gerð af rafhlöðu sem endist betur en þær fyrri.

Kia e-Soul verður í boði með 64 kWh rafhlöðu sem býður upp á 452 kílómetra drægi fullri hleðslu í blönduðum akstri. Rafhlaðan skilar bílnum 204 hestöflum og togið er alls 395 Nm sem er 39% meira en áður. Bíllinn fer úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 7,6 sekúndum.

Nýtt CCS hleðslukerfi gerir það að verkum að aðeins tekur 42 mínútur að hlaða geymirinn í hraðhleðslu frá 20% hleðslu í 80%.

Ný kynslóð e-Soul er talsvert breytt í hönnun frá forveranum Soul EV. Verður bíllinn búinn helsta tækni- og öryggisbúnaði frá Kia. Suður-kóreski bílaframleiðandinn hefur einnig bætt aksturseiginleika bílsins enn frekar.

Kia Soul EV hefur notið mikilla vinsælda síðan hann kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir fjórum árum. Ekki er búist við öðru en að arftaki hans e-Soul verði einnig vinsæll. Eins og forverinn verður e-Soul nettur fjölnotabíll og er hábyggðari en fólksbílar af svipaðri stærð sem þýðir að auðvelt er að stíga inn og út úr honum auk þess sem sætin eru há og útsýni gott.

Bíllinn mun auka enn frekar breidd Kia í flokki hagkvæmra og umhverfismildra rafmagns og tengiltvinnbíla (Plug-in Hybrid).

mbl.is