Fjör í Heklu

Að ýmsu var að hyggja og hver krókur á nýjum …
Að ýmsu var að hyggja og hver krókur á nýjum bílum kannaður.

Fjöldi fólks lagði leið sína í bílaumboðið Heklu um helgina þar sem haustinu var fagnað og fimm nýir bílar frumsýndir.

„Það var sérstaklega skemmtilegt að sjá hver margir sáu sér fært að líta við hjá okkur á laugardaginn þegar við frumsýndum fimm nýja bíla. Stemningin var góð og greinilegt að það eru margir í bílahugleiðingum fyrir veturinn,“ segir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu í tilkynningu.

Volkswagen kynnti nýjan Passat GTE sem er tengiltvinnbíll og hefur verið beðið síðan eldri útgáfan seldist upp fyrir nokkrum mánuðum. Helsta breytingin er að raforkudrægi hefur aukist um 30% og hentar hann núna enn betur þeim sem vilja aka á raforkunni eingöngu. Hann kemur nú með nýrri útgáfu af stýrikerfi þar sem meðal annars er hægt að ræsa bílinn með snjallsíma í stað hefðbundins lykils.

Nýr sportjeppi var í aðalhlutverki hjá Audi þegar Q5 TFSI e tengiltvinnbíllinn var kynntur. Hann dregur allt að 40 km. á rafmagninu einu. Hann er með fyrirferðalítið hleðslukerfi og hlaðinn tæknibúnaði sem veitir aukin þægindi og styður við sparneytinn akstur.

Mitsubishi kynnti 2020 árgerðina af tengiltvinnbílnum Outlander PHEV en í honum er nú  nýtt og endurbætt hljóðkerfi. Einnig tefldu þeir fram sportjeppanum ASX sem hefur fengið andlitslyftingu í takt við nýja línu Mitsubishi.

Þá nýtti Skoda tækifærið og frumsýndi metanbílinn Octavia G-Tec sem er kominn með nýju sniði. Stærsta breytingin á Octavia G-Tec er að nú kemur hann með tveimur metantönkum sem tryggir lengra drægi á innlendri orku.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á sýningu Heklu.

Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri. Veitingar voru vel þegnar.
Frá Heklufjöri. Veitingar voru vel þegnar.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
Frá Heklufjöri.
mbl.is