Taka formlega við Hondaumboðinu

Honda bílar í sýningarsal Bernhard í Vatnagörðum. Þaðan flytur Honda …
Honda bílar í sýningarsal Bernhard í Vatnagörðum. Þaðan flytur Honda upp á Krókháls 11. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bílaumboðið Askja tekur formlega við Honda umboðinu á Íslandi næstkomandi föstudag, 8. nóvember. Askja tekur við Honda umboðinu af Bernhard sem er í eigu fjölskyldu stofnandans, Gunnars Bernhards. Fyrir er Askja með umboð fyrir Mercedes-Benz og Kia og nú bætist Honda við sem þriðja vörumerkið hjá fyrirtækinu.

„Honda er sjöundi stærsti bílaframleiðandi heims og framleiðir yfir 5 milljón bíla á ári. Fyrirtækið er annar stærsti bílaframleiðandi Japans. Honda er auk þess stærsti framleiðandi mótorhjóla í heiminum. Honda framleiðir vinsæla bíla og má þar nefna sportjeppann CR-V, sem hefur verið einn vinsælasti jepplingur landsins um árabil, auk fólksbílanna Jazz og Civic,“ segir í tilkynningu.

Honda hefur markað sér afgerandi stefnu í rafvæðingu og á næstu 36 mánuðum mun fyrirtækið kynna sex nýja umhverfisvæna bíla á markað í Evrópu. Þar af verða tveir rafbílar og fjórir tvinnbílar. Nýr Honda-e rafbíll og Honda Jazz í tvinnútfærslu eru fyrstu bílarnir af þessum sex nýju, umhverfisvænu bílum úr smiðju Honda og koma þeir báðir á næsta ári.

„Við hjá Öskju erum full tilhlökkunar á þessum spennandi tímamótum og bjóðum viðskiptavini Honda velkomna til okkar. Honda er sterkt og gott merki sem hefur verið vinsælt og vel sinnt á Íslandi. Sterk sýn Honda á rafbílavæðingu sannfærði okkur um að þetta merki hentaði Öskju vel. Við munum fá fyrstu Honda-e rafbílanna á næsta ári og hefst forsala þeirra í janúar nk.,” segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.

„Fyrir hönd Bernhard fjölskyldunnar viljum við stjórnendur Bernhard ehf, Geir, Gylfi og Gunnar Gunnarssynir, þakka hinum fjölmörgu tryggu viðskiptavinum Honda hér á Íslandi samfylgdina undanfarin 57 ár og við óskum Öskju, nýjum umboðsaðila Honda á Íslandi velfarnaðar í framtíðinni“, segir Gylfi Gunnarsson, framkvæmdastjóri Bernhard í nefndri tilkynningu.

mbl.is