Nálgast þrettán þúsund bíla á árinu

Dacia Sandero Stepway.
Dacia Sandero Stepway. mbl.is/Ágúst Ásgeirsson

Í nýliðnum nóvember voru 733 fólks- og sendibílar nýskráðir hér á landi. Ellefu fyrstu mánuðina voru 12.392 fólks- og sendibílar nýskráðir samanborið við 19.304 á sama tímabili 2018. Nemur samdrátturinn tæpum 36% milli ára.

Í tilkynningu segir að hlutdeild BL í nóvembersölunni hafi verið 30%. Hlutdeild fyrirtækisins í bílamarkaðinum það sem af væri þessu ári næmi 27,8 prósentum; 24,2% á einstaklingsmarkaði, 27,1 á fyrirtækjamarkaði og 31,9% á markaði bílaleiga.

Af merkjum BL var Nissan söluhæstur í nóvember með 74 nýskráningar, Dacia í öðru með 53
nýskráningar og Hyundai í þriðja með 33, þar af 30 til einstaklinga og fyrirtækja. Söluhæsta
merki BL til bílaleiga í nóvember var Nissan með 45 nýskráningar. Næstur kom Dacia með 44
skráningar. Af lúxusmerkjum BL var 31 nýskráður í nóvember, flestir frá Land Rover eða 19
og var markaðshlutdeild BL á þeim hluta markaðarins 34,1% í mánuðinum og 35,5% það sem af er ári.

Vistmildir þriðjungur sölu BL

Hjá BL var 121 fólks- og sendibíll nýskráður einstaklingum og fyrirtækjum (án bílaleiga) í
nóvember og var þriðjungur þeirra vistmildur bíll, eða 41 talsins; 30 rafbílar, 10
tengiltvinnbílar og einn svonefndur mildur tvinnbíll.

Hlutfall vistmildra bíla hjá BL í nóvember nam 34% heildarfjölda nýskráninga fyrirtækisins til annarra en bílaleiga. Þess má jafnframt geta að á markaðnum í heild var 71 tengiltvinnbíll nýskráður einstaklingum í nóvember, eða 20,5% heildarnýskráninga, og er þetta hæsta hlutfall tengiltvinnbíla í einum mánuði til einstaklinga það sem af er árinu.

Nýskráningar nýrra fólks- og sendibíla við nóvemberlok.
Nýskráningar nýrra fólks- og sendibíla við nóvemberlok.
Nýskráningar bílaleigubíla.
Nýskráningar bílaleigubíla.
Nýskráningar nýrra fólks- og sendibíla eftir bifreiðaumboðum.
Nýskráningar nýrra fólks- og sendibíla eftir bifreiðaumboðum.
mbl.is