Nýr og endurhannaður Renault Clio frumsýndur hjá BL

Straumlínur nýs Renault Clio eru skilvirkari en nokkru sinni.
Straumlínur nýs Renault Clio eru skilvirkari en nokkru sinni.

BL við Sævarhöfða frumsýnir á morgun, laugardaginn 20. júní milli kl. 12 og 16, nýjan og endurhannaðan Renault Clio, einn vinsælasta bíl framleiðandans sem fyrst kom fram á sjónarsviðið árið 1990.

Nú, fimmtán milljón eintökum síðar kynnir Renault tæknilega fullkomnasta Clio frá upphafi. Hann hefur fengið nýjan undirvagn og yfirbyggingu sem tekið hefur fáguðum en um leið sportlegum breytingum í ætt við Megane þar sem hönnun vélarhlífar með upphækkuðum miðjuhluta, stærra grilli og endurhönnuðum framljósum kalla fram sterka og fallega nærveru. Um leið hafa hönnuðirnir gætt þess að umturna ekki þeim megineinkennum sem eiga sinn þátt í einstökum vinsældum bílsins sl. þrjátíu ár.

Farþegarýmið hefur verið endurhannað frá grunni. Ný sæti, nýr og stærri snertiskjár fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfið og fleira blasir strax við auk stafræns „ökumælis“ sem leyst hefur af hólmi eldri skjá í mælaborðinu.

Hægt er að velja um nokkrar mismunandi útfærslur á hönnun farþegarýmisins í nýjum Clio. Innra rýmið er meira en í forveranum og má sem dæmi nefna að farangursrýmið er 91 lítra stærra þrátt fyrir örlítið lægri yfirbyggingu sem hefur í för með sér meiri straumlínulögun, aukið loftflæði og sportlegri ásýnd. Í völdum útfærslum er hægt að velja Clio með 17“ felgum og á næsta ári verður hann auk þess fáanlegum í tvinnútgáfu, fyrstur fólksbíla Renault.

5 Stjörnur Euro NCAP

Innanrými nýs Renault Clio er verulega breytt frá fyrri kynslóð …
Innanrými nýs Renault Clio er verulega breytt frá fyrri kynslóð bílsins.


„Nýr Clio hefur þegar gengist undir öryggispróf Euro NCAP og hlotið fullt hús stiga hjá stofnuninni, 5 stjörnur, fyrir gott öryggi og búnað. Clio er skilgreindur sem einn öruggasti nýi bíllinn á markaðnum í sínum flokki, m.a. fyrir viðnámsgóða yfirbyggingu, gott öryggi fyrir ökumann og farþega, einkum er varðar vörn gegn meiðslum á hálsi, brjóstkassa, lærum og hnjám. Þá er Clio einnig búinn ýmsum forvarnar- og aðstoðarbúnaði til verndar gangandi vegfarendum sem öryggisbúnaðurinn ber kennsl á í umferðinni. Clio er einnig búinn góðu aðstoðarkerfi, m.a. akreinavara, sjálfvirkri hemlun og fleiri öryggisaðgerðum eins og hægt er að kynna sér á bl.is,“ segir í tilkynningu.

Tvisvar „Bíll ársins“ í Evrópu

Renault Clio var fyrst kynntur til leiks árið 1990 og hefur hann frá upphafi verið vinsælasti smábíllinn í heimalandi sínu auk þess að vera jafnan í 1. eða 2. sæti á Evrópumarkaði í sínum flokki. Clio er einn af einungis þremur fólksbílum í sínum flokki á markaðnum sem tvisvar hefur verið kjörinn „Bíll ársins“ í Evrópu. Á síðasta ári var Clio söluhæstur í sínum flokki í Portúgal og Slóveníu auk Frakklands.

Kostar frá 2.990.000 kr.

Nýr Renault Clio hefur fengið fullt hús stigá hjá öryggisstofnuninni …
Nýr Renault Clio hefur fengið fullt hús stigá hjá öryggisstofnuninni EuroNCAP.


BL býður nýjan Renault Clio í þremur útbúnaðarfærslum og kostar grunngerð bílsins 2.990.000 kr. Eldsneytiseyðla er rúmir 4 lítrar og Co2 losun frá 109 g á hverja 100 km.

mbl.is