Á morgun, laugardag, 12. september, frá kl. 12 – 16 gefst gott tækifæri til að sjá alla Proace-línuna hjá Toyota Kauptúni. Proace eru til í ýmsum stærðum, og eru sérbúnir til vöru- og fólksflutninga.
Proace línan hefur til þessa verið í boði sem stærri sendibíll eða allt að 9 sæta fólksflutningabíll. Nú bætist Proace City, sem er minni útgáfa af Proace við línuna bæði sem sendibíll og fólksbíll.
Proace City sendibíll fæst í tveimur lengdum og rúma báðar gerðirnar tvö Euro-bretti. Farangursrými styttri gerðarinnar er allt að 3,7 m3 og allt að 4,3 m3 í lengri gerðinni. Burðargetan er eitt tonn og dráttargetan 1,5 tonn. Bílinn má síðan útfæra á ýmsa vegu til að þjóna fjölbreyttum verkefnum sem best.
Proace City fólksbíllinn fæst með 5 eða 7 sætum og þrjár Isofix-festingar eru í annarri sætaröðinni sem kemur sér vel fyrir barnafjölskyldur. Farþegasætin, bæði aftur í og fram í má fella niður til að auka við farangursrýmið.
Sjö ára ábyrgð er á Proace eins og öðrum bílum frá Toyota og honum fylgir tveggja ára þjónustupakki.