RAV4 stungið í samband

Hin nýja útgáfa Toyota RAV4 er tengiltvinnbíll. Honum verður stungið …
Hin nýja útgáfa Toyota RAV4 er tengiltvinnbíll. Honum verður stungið í samband hjá Toyota á morgun.

Á morgun, laugardaginn 19. september, bjóða viðurkenndir söluaðilar Toyota til frumsýningar á RAV4 tengilvinnbílnum. Opið er hjá Toyota í Kauptúni og á Akureyri frá kl. 10 – 16 en frá kl. 12 – 16 á Selfossi og í Reykjanesbæ.

Með þessari nýjustu útfærslu er hægt að stinga RAV4 í samband og útkoman er bíll sem sameinar kosti rafbíls og sparneytins tvíættabíls (hybrid). RAV4 verður áfram í boði í tvinnútgáfu og sem hefðbundinn bensínbíll.

„Öflugur búnaður RAV4 Plug-in Hybrid tryggir að hann er hreinræktaður rafbíll með allt að 75 km drægi og 135 km/klst. hámarkshraða á rafmagni eingöngu án þess að bensínvélin komi nokkuð við sögu. Sem rafbíll dugar hann því vel í allri venjulegri notkun innanbæjar. Hleðslutími með heimahleðslustöð er aðeins 2,5 klukkustundir,“ segir í tilkynningu.

Velja má um akstur á rafmagni eingöngu eða að nota sameiginlegt afl frá bensínvél og rafhleðslu. „Þannig verður RAV4 Plug-in Hybrid að sannkölluðum sportjeppa því samanlagt afl frá bensínvél og rafmagni er 306 hestöfl og bíllinn er aðeins 6 sekúndur að ná 100 km hraða.“

RAV4 tengiltvinnbíllinn fæst í þremur útfærslum, GX, Style og Style+ og kostar frá 8.550.000 krónum.

Öllum Toyotabílum fylgir 7 ára ábyrgð og tveggja ára þjónustupakki.

mbl.is