Nýr alrafmagnaður Skoda Enyaq

Rafbíllinn Skoda Enyaq.
Rafbíllinn Skoda Enyaq.

Með tilkomu Enyaq tekur Skoda næsta skref í vistvænni stefnu sinni. Rafknúinn Enyaq er fyrsti bíll Skoda sem byggður er á nýjum MEB grunni. Hann er nú þegar fáanlegur afturhjóladrifinn en með haustinu er fjórhjóladrifin útgáfa væntanlega.

Hægt er að velja um tvær stærðir rafhlöðu og er drægi allt að 536 km. skv. WLTP.

„Frumsýning Enyaq markar nýtt tímabil fyrir Skoda. Þetta er fyrsti rafbíllinn okkar sem er byggður á MEB grunninum. Með Enyaq höfum við fundið vistvænum lausnum góðan farveg með langri drægni, hraðri hleðslu, einföldu sniðsmáti og viðráðanlegum verðum. Enyaq er framleiddur í hjarta Skoda, Mlada Boleslav, þar sem verksmiðjan okkar er sú eina innan Evrópu, fyrir utan Þýskaland, sem framleiðir bíla byggða á MEB grunninum. Þetta er góður vitnisburður um sérþekkingu Skoda og vil ég þakka öllu því góða fólki sem gerði bílinn að veruleika. Bíllinn er frábær ég er stoltur af Skoda teyminu,“ sagði Thomas Schafer forstjóri Skoda Auto í tilkynningu.

Skoda Enyaq er rúmgóður, með ríkulegt geymslupláss og rúmt innanrými. Hönnun Enyaq er stílhrein. Mikið var lagt upp úr því að plássið í bílnum nýtist sem allra best. Fjölmörg geymsluhólf eru meðal þess sem einkennir innanrýmið sem umhverfisvæn áklæðisefni prýða.

Í síðustu viku kom til landsins enn sportlegri útgáfa af Enyaq og heitir sá Sportline. Er hann á á nýstárlegri felgum og troðfullur af sportlegum staðalbúnaði.

„Nú þegar höfum við hafið afhendingar á Skoda Enyaq til nýrra eigenda sinna og hefur bíllinn vakið mikla lukku. Þetta er stórt skref fyrir Skoda og þessi alrafmagnaði fjölskyldubíll er sérstaklega góður fyrir þá sem keyra mikið og þurfa pláss fyrir fjölskylduna, nú eða golfsettið! Við erum með þrjá sýningarbíla inn í sýningarsalnum hjá okkur á Laugavegi og tvo aðra til að lána fólki í reynsluakstur. Ég hvet fólk til að koma við hjá okkur og prófa nýjan Skoda Enyaq,“ segir Hjördís María Ólafsdóttir vörumerkjastjóri Skoda, í tilkynningunni.

Rafbíllinn Skoda Enyaq.
Rafbíllinn Skoda Enyaq.
Rafbíllinn Skoda Enyaq.
Rafbíllinn Skoda Enyaq.
Rafbíllinn Skoda Enyaq.
Rafbíllinn Skoda Enyaq.
mbl.is