Raf-Mustang í sal Brimborgar

Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.

Fyrsti Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi og kominn í sýningarsal Ford hjá Brimborg til sýnis og reynsluakturs.

„Mjög mikill áhugi er fyrir þessum magnaða rafbíl frá Ford og Norðmenn, sem komnir eru lengst í rafbílavæðingunni, tóku vel á móti honum þegar salan hófst í maí þar í landi og settu hann beint í fyrsta sæti með tæpa 1.400 bíla selda,“ segir í tilkynningu frá Brimborg.

Sýningarbíllinn er búinn fjórhjóladrifi og 351 hestafla rafmótor sem skilar 580 Nm togi sem kemur bílnum í 100 km hraða á aðeins 5,1 sekúndu. Hann er búinn 98 kílóvattstunda rafhlöðu sem skilar drægi upp á 540 km. Kemst hann  því auðveldlega frá Reykjavík til Akureyrar á einni hleðslu.

„Það má með sanni segja að blað sé brotið í sögu Ford Mustang sem er goðsögn í bílaheiminum og hefur hingað til aðeins fengist sem tveggja dyra sportbíll. Í fyrsta skipti í 55 ára sögu þessa fræga bílamerkis er ný gerð sett á markað,“ segir Brimborg.

Ford Mustang Mach-E er ferðarafbíll í flokki stærri bíla, rúmir 4,7 metrar að lengd og því rúmgóður fyrir fimm farþega. Farangursrými að aftan er 402 lítrar og stækkanlegt með því að fella niður aftursætisbök, að hluta eða öllu leiti. Að auki er hann með farangursrými að framan sem er 100 lítrar.

„Ford Mustang Mach-E rafbíllinn kemur á háréttum tíma fyrir orkuskiptin á Íslandi. Smellpassar við íslenskar aðstæður. Langdrægur, fjórhjóladrifinn, rúmgóður ferðarafbíll með jeppalagi og einstaklega mikið drægi á hreinu rafmagni sem kemur allri fjölskyldunni og farangri í einni lotu milli Reykjavíkur og Akureyrar sem er algengt viðmið“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.

Ford Mustang Mach-E fæst í fjórum mismunandi útgáfum og með tveimur stærðum rafhlöðu fyrir mismunandi þarfir kaupenda. Með Long Range 98 kílóvattstunda rafhlöðu og afturdrifi er drægið allt að 610 km og með fjórhjóladrifi er drægið 540 km. Með Standard Range 75 kílóvattstunda rafhlöðunni og afturdrifi er drægið einnig frábært eða 440 km og 400 km þegar valið er fjórhjóladrif.

Rannsóknir sýna að langflestir eigendur rafbíla hlaða heima en margir einnig á vinnustað. Ford Mustang Mach-E er með 11 kW innbyggða hleðslustýringu sem gerir honum kleift að taka við þriggja fasa hleðslu (AC) hvort sem er heima eða á vinnustað. Þegar á þarf að halda er hægt að hlaða eldsnöggt í hraðhleðslu. Long Range útfærslan með 98kWh drifrafhlöðunni getur nýtt sér allt að 150 kW hraðhleðslustöð (DC) og hlaðið frá 10% í 80% á aðeins 45 mínútum. Standard Range 75 kWh útfærsluna er hægt að hlaða frá 10% í 80% á 38 mínútum í allt að 115 kW hraðhleðslustöð, samkvæmt gögnum frá Brimborg.

Ford Mustang Mach-E er hlaðinn staðalbúnaði. Framrúða og hliðarspeglar eru upphituð og farþegarými er alltaf heitt með aðstoð forhitara með tímastilli auk þess sem stýri er upphitað og leðurklætt og fjölstillanleg, framsætin eru upphituð. Hljómtækin eru frá B&O með 10 hátölurum, þráðlaus hleðsla fyrir farsíma, stór 15,5" snertiskjár, nálægðarskynjarar, lyklalaust aðgengi, Ford pass og sjálfvirk netuppfærsla hugbúnaðar (OTA) svo fátt eitt sé upptalið.

Ford Mustang Mach-E bílar sem keyptir eru hjá Brimborg eru sérhannaðir fyrir Evrópu með búnaði og gerðaviðurkenningu fyrir Evrópu og uppfylla þannig allar skráningarkröfur á því markaðssvæði. Fjöðrun, stýri og driflína eru aðlöguð að evrópskum aðstæðum. Búnaður er m.a. miðaður við kalt loftslag og drægi miðast við evrópskar WLTP reglur. Leiðsögukerfi með Íslandskorti fylgir Evrópubílum ásamt hleðslukapli með TYPE2 tengi fyrir evrópskar aðstæður.

Fimm ára verksmiðjuábyrgð er á Ford Mustang Mach-E bílum og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu sem keyptir eru hjá Brimborg.

Ford Mustang Mach-E kostar frá 6.890.000 krónum og er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar.

Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi.
mbl.is