Volvo FH16 750 með ofurstóru húsi

Þessir Volvo FH16 750 eru komnir í notkun hjá Jóni …
Þessir Volvo FH16 750 eru komnir í notkun hjá Jóni og Margeir í Grindavík.

Volvo FH16 750 með XXL húsi verður frumsýndur hjá Velti að Hádegismóum 8 í Árbæ á morgun, fimmtudaginn 1. júlí, frá klukkan 13 til 17.

Um er að ræða þriðja bílinn sem Jón og Margeir í Grindavík eru að fá af nýrri kynslóð vörubíla frá Volvo.

„Bíllinn er einn með öllu og aðeins meira en það enda ökumannshúsið í XXL stærð sem er einstaklega rúmgott og þægilegt fyrir ökumann bílsins. Einstök svefnaðstaða og nægt vinnu- og geymslurými. Sjón verður sögu ríkari á frumsýningu á einum glæsilegasta vörubíl landsins á fimmtudaginn,“ segir í tilkynningu.

Nýr Volvo FH16 er búinn framúrskarandi tækni og gæði höfð að leiðarljósi við hönnun og þróun bílsins. Hann er hannaður með þægindi ökumanns í huga og öll stjórntæki í réttri vinnuhæð.  Nákvæmni I-SHIFT stýringarinnar eru sögð einstök.

Þessir Volvo FH16 750 er nýkominn í notkun hjá Jóni …
Þessir Volvo FH16 750 er nýkominn í notkun hjá Jóni og Margeiri í Grindavík.
mbl.is